Fara í efni

Ársþing Hnefaleikasambands Íslands fór fram laugardaginn 9. maí síðastliðinn, í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Á þinginu var kosin ný stjórn sambandsins. Jón Lúðvíksson, formaður sambandsins, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku og var Ólafur Guðlaugsson kjörinn  nýr formaður HNÍ til næstu tveggja ára. Með honum í stjórn eru Almar Ögmundsson, Davíð Ingi Almarsson, Sævar Ingi Rúnarsson og Kristjana Ósk Veigarsdóttir.

Á þinginu var farið yfir skýrslu stjórnar, ársreikning 2025 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 ásamt afreksstefnu og aðgerðaráætlun sambandsins til næstu ára. Mikil áhersla var lögð á áframhaldandi uppbyggingu innan sambandsins, markvissari verkefnastýringu og styrkingu á afreks- og mótastarfi. Ársreikningur sambandsins sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu og sterkari fjárhagsstöðu en áður þrátt fyrir aukna starfsemi hjá sambandinu. Lagabreytingar voru einnig teknar til umræðu og samþykktar á þinginu. 

Sjá nánari upplýsingar um þau mál sem tekin voru fyrir á þinginu í frétt á heimasíðu HNÍ.