Íþrótta‑ og Ólympíusamband Íslands hefur sett í loftið nýja heimasíðu sem kemur í stað eldri síðu sambandsins. Heimasíðan er uppsett þannig að framsetning á starfsemi og verkefnum ÍSÍ er skýrari, myndrænni og aðgengilegri.
Á næstu vikum verður áfram unnið að fínstillingu og notendaprófun á síðunni, meðal annars varðandi framsetningu einstakra efnisflokka og leiðakerfi. Uppfærslur á efni og uppsetningu verða birt jafnóðum.
