Skautasamband Íslands (ÍSS) og Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) hafa á síðustu vikum ráðið nýja framkvæmdastjóra til starfa.
Einar Björn Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands. Hann hóf störf 1. júní og mun starfa á skrifstofu ÍSS við Engjaveg.
Einar Björn Þorgrímsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga. Samkvæmt upplýsingum frá UDN er um 20% starf að ræða.
Tenglar
