Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Háskóli Íslands hafa gert með sér samstarfssamning sem auðveldar íþróttafólki í afrekshópum ÍSÍ að samræma nám og afreksíþróttaiðkun. Samningurinn er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi og styrkir umgjörð þeirra sem stunda íþróttir á hæsta stigi. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, undirrituðu samninginn í Háskóla Íslands fyrr í vikunni.
Samningurinn er gerður í framhaldi af stefnumótun stjórnvalda um bætta umgjörð fyrir afreksíþróttafólk á Íslandi. Í nýrri framtíðarsýn stjórnvalda er meðal annars lögð áhersla á aukið samstarf ÍSÍ og háskólasamfélagsins, betri samþættingu náms og afreksíþróttaferils, reglulegar afkastagetumælingar og aukna þekkingarsköpun á sviði íþrótta.
„Undirritun samningsins er mikilvægt skref í framkvæmd þeirrar framtíðarsýnar og styður jafnframt við markmið afreksstefnu ÍSÍ um að skapa íþróttafólki aðstæður til að samræma nám og afreksíþróttaiðkun,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Samkvæmt samningnum mun Afreksmiðstöð Íslands, í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ, skilgreina þann hóp sem þarf á auknum sveigjanleika í námi að halda vegna afreksíþróttaiðkunar sinnar og upplýsa Háskóla Íslands um hverjir tilheyra honum.
Á móti mun Háskóli Íslands leitast við að koma til móts við þarfir hópsins með auknum sveigjanleika varðandi mætingu, verkefnaskil og próftöku, auk möguleika á hlutanámi vegna æfinga, æfingabúða, keppnisferða og þátttöku á stórmótum.
Með samningnum bætist Háskóli Íslands í hóp mikilvægra samstarfsaðila ÍSÍ og Afreksmiðstöðvar Íslands í þeirri sameiginlegu vegferð að efla umgjörð afreksíþrótta á Íslandi.

