Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík hefur opnað nýtt fræðslusafn á netinu sem auðveldar íþróttahreyfingunni að nálgast fjölbreytt fræðsluefni. Þar má finna efni sem starfsfólk deildarinnar hefur unnið sjálft eða í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ, sérsambönd, ÍBR og fleiri.
Í safninu eru 299 færslur sem fjalla um íþróttir frá ýmsum hliðum. Efnið var áður á víð og dreif um netið en er nú allt á einum stað, flokkað og leitarbært. Þar eru meðal annars upptökur af kennslu, þáttaraðir og tvö hlaðvörp deildarinnar, Íþróttarabb HR og RU Sport Psych Podcast. Í hverri viku er svo einn fyrirlestur eða hlaðvarpsþáttur dreginn fram undir liðnum „Fræðsla vikunnar“.
Safnið er opið öllum og nýtist vel í fræðslu innan félaga, sem ítarefni á þjálfaranámskeiðum eða í námi þjálfara. Deildin mun bæta við nýju efni jafnóðum.
ÍSÍ hvetur félög, þjálfara og aðra í íþróttahreyfingunni til að kynna sér safnið og nýta það.
Fræðslusafnið má finna á fraedsla.ithrottafraedi.is. Einnig er hlekkur á safnið undir Fræðslumyndböndum á vef ÍSÍ.
