Fara í efni

Mikil gleði og góð þátttaka einkenndu Ólympíudaginn við Vísisvöll í Suðursveit í dag. Fjöldi barna og ungmenna frá Höfn og nærsveitum tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem gleðin var í fyrirrúmi.

Starfsfólk ÍSÍ stýrði leikjum og þrautum dagsins ásamt Jóhönnu Írisi, svæðisfulltrúa á Austurlandi, Björgu Gunnarsdóttur frá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ) og Bjarna Malmquist Jónssyni, formanni Ungmennafélagsins Vísis.

Þátttakendur fengu að spreyta sig í fjölmörgum greinum, meðal annars fótbolta, körfubolta, ýmsum kastgreinum, borðtennis, pickleball, spikeball, hlaupum og fleiri skemmtilegum þrautum. Stemningin var frábær og greinilegt að dagskráin höfðaði til þátttakenda á öllum aldri.

Við þetta tækifæri fékk Ungmennafélagið Vísir fjölda bolta að gjöf frá KSÍ og KKÍ sem munu nýtast vel í starfi félagsins.

Sólin lét sjá sig allan daginn og þótt vindurinn væri hressilegur kom það ekki að sök. Aðstaðan við Vísisvöll reyndist afar vel og lofar góðu fyrir áframhaldandi íþróttastarf á svæðinu.

Meðfylgjandi eru skemmtilegar myndir frá deginum.