Í dag, 23. júní, er Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim. Dagurinn er haldinn ár hvert til að minnast stofnunar Alþjóðaólympíunefndarinnar og hvetja fólk á öllum aldri til hreyfingar og þátttöku í íþróttum. Markmiðið er að skapa tækifæri fyrir fólk til að njóta hreyfingar og samveru, óháð aldri eða getu, og um leið vekja athygli á gildum Ólympíuhreyfingarinnar: vinátta, virðing og að gera sitt besta.
Af því tilefni mun ÍSÍ, í samstarfi við Svæðisstöð íþróttahéraða á Austurlandi og Ungmennafélagið Vísi, halda upp á Ólympíudaginn á Vísisvellinum í Suðursveit föstudaginn 26. júní. Viðburðurinn hefst klukkan 13:00 og þar munu börn og unglingar af svæðinu koma saman til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar, hreyfa sig og eiga góða stund saman.
Það er sérstaklega ánægjulegt að halda upp á Ólympíudaginn á Vísisvellinum, þar sem vígslumót hins nýja vallar fer fram daginn eftir. Þar munu fremstu frjálsíþróttamenn landsins ásamt heimafólki og öðrum gestum keppa á glæsilegri nýrri aðstöðu í Suðursveit.
Nánari upplýsingar um Ólympíudaginn má finna á heimasíðu Alþjóðaólympíunefndarinnar: https://www.olympics.com/ioc/olympic-day
Nánar má lesa um vígslumótið hér: https://www.facebook.com/events/848565408232708
