Fara í efni

Ólympíuhlaup ÍSÍ var formlega sett í gær í Dalvíkurskóla á Dalvík. Nemendur, starfsfólk skólans og gestir komu saman við setningarathöfnina áður en hlaupið var ræst.

Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla, bauð gesti og nemendur velkomna og stýrði dagskránni. Ragnhildur Skúladóttir, sviðstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ,  kynnti verkefnið og afhenti skólanum búnað sem nýtist nemendum í leik og hreyfingu. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, flutti einnig ávarp við athöfnina.

Að setningu lokinni tóku þátttakendur þátt í upphitun áður en hlaupið var ræst. Blossi, lukkudýr ÍSÍ, var á staðnum og vakti mikla lukku meðal nemenda.

Í boði voru þrjár vegalengdir: 2,5 km, 5 km og 10 km. Hlaupið fór fram um Böggvisstaðahringinn, sem er um 2,5 kílómetrar að lengd, og hlupu þátttakendur einn eða fleiri hringi eftir því hvaða vegalengd þeir völdu. Starfsfólk skólans var einnig hvatt til þátttöku og hlupu margir með nemendum.

Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur verið fastur liður í skólastarfi grunnskóla víða um land frá árinu 1984. Starfsfólk fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ hefur um árabil ferðast um landið og sett hlaupið formlega af stað á hverju hausti. Hlaupið er í dag hluti af Íþróttaviku Evrópu, BeActive, og hefur það að markmiði að hvetja nemendur til reglulegrar hreyfingar og stuðla að betri heilsu, vellíðan og jákvæðum lífsvenjum.

Þótt hlaupið hafi nú verið formlega sett í Dalvíkurskóla geta grunnskólar um allt land tekið þátt fram til áramóta. Allir skólar sem skrá þátttöku fyrir 9. október fara í pott þar sem dregið verður um 150.000 kr. gjafabréf frá Altis.

Hér er hægt að skrá skóla í Ólympíuhlaupið 2026

/cdn/media/Frettamyndir/20260903_100349.jpg?v=1788542829
Það var gefið allt í þetta!
/cdn/media/Frettamyndir/20260903_110056.jpg?v=1788544130
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla og Ragnhildur Skúladóttir, sviðstjóri hjá ÍSÍ
/cdn/media/Frettamyndir/20260903_095937.jpg?v=1788544295
Allir með!
/cdn/media/Frettamyndir/20260903_091852.jpg?v=1788542892
Undirbúningur hafinn
/cdn/media/Frettamyndir/20260903_095926.jpg?v=1788544016
Koma svo!
/cdn/media/Frettamyndir/20260903_093354.jpg?v=1788543634
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar og Ragnhildur Skúladóttir, sviðstjóri frá ÍSÍ
/cdn/media/Frettamyndir/20260903_105443-1.jpg?v=1788544496
Áfram Dalvík!