Innan við sjö vikur eru þar til Ólympíuleikar ungmenna, Dakar 2026, hefjast í Senegal. Ólympíueldurinn var tendraður við hátíðlega athöfn í Aþenu 10. september og kom til Senegal tveimur dögum síðar. Bassirou Diomaye Faye, forseti Senegal, tók formlega við kyndlinum framan við forsetahöllina í Dakar á laugardag að viðstaddri Kirsty Coventry, forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar.
Hundrað senegalskar konur báru eldinn í skrúðgöngu um Dakar sama dag þar sem körfuknattleikskonan Mame Maty Mbengue tendraði ólympíukyndilinn við sjávarsíðuna. Kyndilhlaupið sjálft hófst 14. september. Ólympíukyndillinn fer um öll 14 héruð Senegal með viðkomu á rúmlega 30 stöðum og lýkur ferðinni í Dakar 30. október, daginn fyrir setningarhátíðina.

Um 2.700 íþróttamenn á aldrinum 15–17 ára frá öllum heimshornum taka þátt í 25 íþróttagreinum. Þrjú íslensk ungmenni munu keppa á leikunum: Alexander Ari Andrason og Sólveig Freyja Hákonardóttir í sundi og Ari Vilberg Jónasson í skylmingum.
Leikarnir hefjast 31. október. Þetta er í fyrsta sinn sem íþróttaviðburður á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar fer fram í Afríku og því sannkölluð tímamót fyrir álfuna. Á næstu vikum kynnum við íslensku keppendurna nánar og fylgjumst með undirbúningi þeirra.
Lesa má nánar um komu kyndilsins til Senegal hér.
