Fara í efni

ÍSÍ vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir umsóknir í Íþróttasjóð vegna verkefna ársins 2027.

Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • Aðstöðuverkefna með sérstakri áherslu á verkefni sem styrkja umgjörð íþróttastarfs barna og ungmenna.
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að eflingu faglegrar umgjarðar íþróttafélaga, einkum verkefni sem snúa að jaðarsettum hópum í íþróttum.
  • Íþróttarannsókna.
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Markmið Íþróttasjóðs er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og ungmenni, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu.

Umsóknarfrestur er til kl. 15.00 fimmtudaginn 1. október 2026.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Á vef sjóðsins er að finna aðgang að umsóknarkerfi, leiðbeiningar fyrir umsækjendur, matskvarða, eyðublöð, lög og reglugerðir sjóðsins ásamt öðrum upplýsingum um umsóknarferlið. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Nánari upplýsingar um Íþróttasjóð má finna á: https://island.is/ithrottasjodur

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í netfanginu ithrottasjodur@rannis.is eða í síma 699 2522.

Allir umsækjendur eru hvattir til að skila umsóknum með góðum fyrirvara og bíða ekki fram á síðustu stundu enda getur tekið tíma að ganga frá umsókn og fylgigögnum.