ÍSÍ óskar eftir tilnefningum frá sérsamböndum vegna Norræns styrks fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk. Styrkurinn nemur 16.000 evrum eða um 2,5 milljónum króna og er fjármagnaður af Lars Weinaa Foundation.
Einn íþróttamaður frá hverju Norðurlandanna hlýtur styrkinn. Markmiðið er að styðja styrkþegann á áframhaldandi afreksvegferð.
Hvað er horft til?
Við val á styrkþega verður horft til:
- íþróttalegrar getu, árangurs og framtíðarmöguleika
- hvort viðkomandi sé góð fyrirmynd innan vallar sem utan
- hvernig styrkurinn geti nýst til áframhaldandi framþróunar í íþróttinni
- hvort einstaklingurinn endurspegli hugmyndina um íþróttafólk sem heilsteyptar manneskjur
Skilyrði
- Íþróttamaðurinn þarf að vera á aldrinum 16–21 árs.
- Styrknum skal varið í íþróttatengd verkefni eða kostnað.
- Íþróttamaðurinn þarf að hafa náð góðum árangri en ekki síður að vera góð fyrirmynd.
Hvernig er tilnefnt?
Hvert sérsamband getur tilnefnt einn einstakling að hámarki með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér.
Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 16. október.
Fyrirspurnir má senda á ami@isi.is.
Eir Chang Hlésdóttir hlaut styrkinn í fyrra

Styrkveitingin fór fram í fyrsta sinn í fyrra og þá hlaut spretthlauparinn Eir Chang Hlésdóttir styrkinn fyrir hönd Íslands. Síðan hefur Eir haldið áfram að taka stór framfaraskref. Hún hefur orðið Norðurlandameistari, sett Íslandsmet í kvennaflokki og sýnt að hún getur náð framúrskarandi árangri á alþjóðavettvangi. Hún er gott dæmi um þann metnað, þá hæfileika og framtíðarmöguleika sem styrknum er ætlað að styðja.
