Fara í efni

85. ársþing USVH var haldið í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka 14. apríl síðastliðinn og sá Umf. Grettir um skipulagningu þess í ár. Fundarstjóri þingsins var Júlíus Guðni Antonsson og voru Sveinbjörg Rut Pétursdóttir formaður USVH og Anton Scheel Birgisson, framkvæmdastjóri USVH, fundarritarar þingsins. Á þinginu voru lagðar til nokkrar breytingar á lögum USVH og reglugerð um styrktarsjóð USVH ásamt tillögum úr nefndum. Fundargerð þingsins má finna á heimasíðu USVH.

Sveinbjörg Rut Pétursdóttir gaf ekki kost á sér áfram sem formaður sambandsins og var Rakel Ósk Ólafsdóttir kjörin nýr formaður USVH til næstu tveggja ára. Guðni Þór Skúlason var kjörinn meðstjórnandi til tveggja ára í stað Guðrúnar Gróu Þorsteinsdóttur. Kjörnir voru þrír varamenn, fyrsti varamaður til eins árs, Birgir Þór Þorbjörnsson, annar varamaður til eins árs, Katarina Borg og þriðji varamaður til eins árs, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.

Tveir skoðunarmenn til eins árs voru kosnar þær Kristín Ólafsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir. Einn skoðunarmaður til vara til eins árs var kosin Þórdís Helga Benediktsdóttir.

Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ, sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og nýtti tækifærið til þess að afhenda verðlaun sem Grunnskóli Húnaþings vestra og Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra unnu til í Lífshlaupinu í ár. Auk hans vorur þau Halla Margrét Jónsdóttir í stjórn UMFÍ og Halldór Lárusson, svæðisfulltrúi ÍSÍ og UMFÍ á Norðurlandi vestra, gestir á þinginu.  

Myndir/usah.is