Fara í efni

Forvarnardagurinn var haldinn í gær í 21. sinn undir yfirskriftinni Samtal og samkennd. Meðal þeirra sem fluttu ávörp á málþingi dagsins í Verzlunarskóla Íslands voru Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur og María Heimisdóttir landlæknir. Einnig fluttu tveir nemendur skólans erindi, þau Edda Sól Óladóttir og Magnús Geir Björgvinsson.

Dagurinn er ætlaður nemendum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Markmiðið er að fá ungt fólk til að ræða það sem skiptir máli fyrir velferð þess og þroska, svo sem samveru, vináttu, íþrótta- og tómstundastarf og heilbrigðar ákvarðanir.

Í ár nær verkefnið einnig til allra framhaldsskólanema. Laugardaginn 10. október verður efnt til þjóðarsamtals undir spurningunni Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Ungt fólk leiðir samtalið en öll eru velkomin, óháð aldri. Fólk á aldrinum 16–30 ára getur skráð sig sem lóðsar og stýrt umræðum. Nánar má lesa um samtalið á vef Forvarnardagsins.

Íþróttir sem verndandi þáttur

Í ávörpum dagsins var lögð áhersla á tengsl, samkennd og samtal. Nemendurnir minntu á mikilvægi þess að vera maður sjálfur og hugsa vel um samskipti sín við aðra, og ungmenni voru hvött til að hlusta hvert á annað, taka eftir þeim sem standa til hliðar og láta til sín taka í samfélaginu. Rætt var um ábyrgð samfélagsins á því að búa ungu fólki góð skilyrði. Þar skipta íþróttir og tómstundir, samvera með fjölskyldunni og góðir vinir miklu máli. Þá var minnt á að heilinn þarf að fá að þroskast án áfengis og annarra vímuefna og að ungt fólk þarf góða fræðslu til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu.

Þátttaka í íþróttum og öðru skipulögðu starfi getur verndað börn og ungmenni. Þar myndast vinátta, sjálfstraustið eykst og krakkarnir læra að vinna saman og bera virðingu hvert fyrir öðru.

Samstarf um farsæld ungmenna

ÍSÍ hefur verið samstarfsaðili Forvarnardagsins frá upphafi og styður markmið hans heils hugar. Íþróttafélög um allt land leggja sitt af mörkum á hverjum degi með starfi þar sem börn og ungmenni finna að þau tilheyra hópi og fá tækifæri til að vaxa og dafna.

Nánari upplýsingar um daginn er að finna á heimasíðu Forvarnadagsins.

/cdn/media/Frettamyndir/Forvarnardagurinn/0W5A6531.jpg?v=1790940914
/cdn/media/Frettamyndir/Forvarnardagurinn/0W5A6597.jpg?v=1790941052
/cdn/media/Frettamyndir/Forvarnardagurinn/0W5A6648.jpg?v=1790940919
/cdn/media/Frettamyndir/Forvarnardagurinn/0W5A6462.jpg?v=1790940912
/cdn/media/Frettamyndir/Forvarnardagurinn/IMG_2565.jpg?v=1790940926