Málþingið „Samtal og samkennd“ sem haldið er í tengslum við Forvarnardaginn fer fram fimmtudaginn 1. október kl. 11:30–12:30. Þar verður fjallað um málefni ungmenna, forvarnir og mikilvægi þeirra þátta sem stuðla að jákvæðri heilsu og vellíðan. Meðal þeirra sem koma fram eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, María Heimisdóttir landlæknir, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og ungmenni. Fundarstjóri verður Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs embættis landlæknis.
Málþinginu verður streymt beint á YouTube og geta áhugasamir fylgst með dagskránni hér.
Forvarnardagurinn
Forvarnardagurinn er nú haldinn í 21. sinn og beinist að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Þar ræða nemendur nýjustu niðurstöður rannsókna sem snúa að þeirra aldurshópi og velta fyrir sér mikilvægi samveru, íþrótta- og tómstundastarfs og þess að leyfa heilanum að þroskast við góðar aðstæður. Einnig er fjallað um hvaða áhrif þessir verndandi þættir hafa á líf og líðan ungmenna.
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á mikilvægi þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem verndandi þáttar í lífi barna og ungmenna. Slík þátttaka stuðlar meðal annars að félagslegum tengslum, jákvæðri sjálfsmynd og aukinni vellíðan og getur þannig dregið úr líkum á áhættuhegðun.
Nemendur vinna saman í hópum þar sem þau skrá hugmyndir sínar og sjónarmið. Svörunum er síðan safnað saman til að finna samnefnara í umræðunum. Jafnframt gefst þeim kostur á að taka þátt í verkefnum sem stuðla að auknum skilningi á þeim þáttum sem geta dregið úr áhættuhegðun.
Fjölbreytt samstarf að baki deginum
Embætti landlæknis stendur að Forvarnardeginum í samstarfi við embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu, Planet Youth, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samfés, Heimili og skóla, Samstarf félagasamtaka í forvörnum og embætti ríkislögreglustjóra.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um Forvarnardaginn má finna hér á heimasíðu verkefnisins.
