Nú eru tæpir sex mánuðir þar til Vetrar-Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF) 2027 hefst í Brașov í Rúmeníu en hátíðin fer fram dagana 14. til 21. febrúar 2027. Samkvæmt upplýsingum frá Evrópsku Ólympíunefndunum (EOC) gengur undirbúningur leikanna vel og skipuleggjendur vinna náið með EOC að framkvæmd þeirra.
Gert er ráð fyrir að um 1.000 íþróttamenn á aldrinum 14 til 18 ára taki þátt í leikunum. Keppt verður í íshokkí, 3x3 íshokkí, alpagreinum, snjóbrettum, gönguskíðum, skíðastökki, skíðaskotfimi, listskautum, skammbrautarskautum og skíðafjallgöngu.
Samhliða undirbúningi keppninnar stendur vinna yfir við íþróttamannaþorp og svæði fyrir setningar- og lokahátíð leikanna. Samræmingarnefnd Evrópsku Ólympíunefndanna fyrir Brașov 2027 vinnur jafnframt náið með skipuleggjendum að áframhaldandi undirbúningi leikanna.
Innan EOC er Líney Rut Halldórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍSÍ, formaður EYOF-nefndarinnar og situr jafnframt í framkvæmdastjórn samtakanna. Í því hlutverki hefur hún fylgst náið með undirbúningi leikanna og segir mikla tilhlökkun vera fyrir þeim.
„Nú þegar aðeins sex mánuðir eru til stefnu er spennandi tími fram undan hjá öllum þeim sem koma að undirbúningi Brașov 2027. Undirbúningurinn gengur vel og við erum fullviss um að Rúmenía muni standa að frábærri Vetrar-Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fyrir efnilegasta unga vetraríþróttafólk Evrópu. Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar gegnir mikilvægu hlutverki við að kynna ungt íþróttafólk fyrir keppni á háu alþjóðlegu stigi og þeim gildum og hugsjónum sem ólympíuhreyfingin stendur fyrir. Þetta er reynsla sem fylgir þátttakendum langt inn í íþróttaferil þeirra og lífið sjálft."
Á næstu mánuðum mun skýrast hverjir skipa íslenska hópinn sem keppir í Brașov í febrúar 2027. Nánar verður greint frá þátttöku Íslands þegar nær dregur.

