Vorannarfjarnámi ÍSÍ í þjálfun á 1. og 2. stigi lauk nýverið og sátu 49 nemendur námið þessa önn. Nemendur komu frá 22 íþróttagreinum og 10 íþróttahéruðum sem endurspeglar breiða þátttöku í náminu.
Siglingar voru fjölmennasta íþróttagreinin á vorönn, með 8 nemendur, og er það í fyrsta sinn sem greinin er fjölmennust í þjálfaramenntun ÍSÍ. Þar á eftir fylgdu skíðaíþróttir með 6 nemendur og píla með 5 nemendur. Aðrar íþróttagreinar voru með frá einum upp í fjóra nemendur hver.
Alls voru 29 karlar og 20 konur skráðir í námið á vorönn. Nánari sundurliðun á kynjaskiptingu, aldurssamsetningu, þátttöku eftir íþróttagreinum og dreifingu milli íþróttahéraða má sjá á meðfylgjandi kökuritum.



