Björn Baldursson, Manuela Magnúsdóttir og Elmar Orri Gunnarsson hafa öll sett sterkan svip á klifuríþróttir á Íslandi. Þau voru sæmd Silfurmerki ÍSÍ sunnudaginn 27. september, þegar Klifursamband Íslands (KÍ) hélt upp á fimm ára afmæli sitt.
Veislan var haldin í Andrasal hjá Fimleikafélaginu Björk, samhliða úrslitum á fjórða móti Unbroken-mótaraðarinnar. Benedikt Ófeigsson, formaður KÍ, rifjaði upp sögu klifurfélaga hér á landi og aðdragandann að stofnun sambandsins. Birgir Óli Snorrason, ríkjandi Íslandsmeistari í grjótglímu, deildi reynslu sinni af keppnisklifri og ræddi hve mikið íþróttin hefur þróast á undanförnum árum.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Hafsteinn Pálsson, sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ og er formaður Heiðursráðs sambandsins, afhentu Silfurmerkin fyrir störf þremenninganna í þágu klifurs á Íslandi. Stjórn KÍ heiðraði þau einnig fyrir þeirra þátt í uppbyggingu íþróttarinnar.
Björn Baldursson var í hópi þeirra sem ruddu brautina fyrir klifur hér á landi. Árið 1994 varð hann fyrstur Íslendinga til að keppa á heimsbikarmóti, í Villach í Austurríki. Tveimur árum síðar tók hann þátt í að stofna Sportklifurfélag Reykjavíkur, forvera Klifurfélags Reykjavíkur. Árið 1997 opnaði fyrsti klifursalur landsins, Vektor í Borgartúni og var Björn í hópnum sem stóð að honum. Hann hefur lagt fram ómælda sjálfboðavinnu við uppbyggingu æfingaaðstöðu og útiklifursvæða og á sæti í varastjórn KÍ.
Manuela Magnúsdóttir var í stofnhópi Klifursambandsins árið 2021 og leiddi það sem fyrsti formaður til ársins 2024. Hún var fyrst til að þjálfa afrekshóp Klifurfélags Reykjavíkur og á að baki góðan feril bæði í keppni og útiklifri.
Elmar Orri Gunnarsson tók einnig þátt í stofnun KÍ, sat í fyrstu stjórn þess og hefur undanfarin ár þjálfað landslið sambandsins. Hjá Klifurfélagi Reykjavíkur hefur hann gegnt fjölbreyttum hlutverkum. Þau spanna allt frá þjálfun barna og ungmenna og afreksþjálfun til leiðasmíði og framkvæmdastjórnar.
ÍSÍ óskar Birni, Manuelu og Elmari innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar þeim fyrir framlag þeirra til íþróttanna í landinu. Jafnframt óskar ÍSÍ Klifursambandi Íslands til hamingju með tímamótin.
