Fara í efni

Skíðafélag Ísfirðinga hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á ársþingi Héraðssambands Vestfirðinga sem fram fór á Þingeyri fimmtudaginn 28. maí síðastliðinn. Forseti ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, afhenti viðurkenninguna fyrir hönd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Viðurkenningin er veitt þeim íþróttafélögum sem uppfylla viðmið ÍSÍ um faglegt og vandað starf, góða stjórnarhætti og markvissa uppbyggingu. Skíðafélag Ísfirðinga hefur á síðustu árum lagt áherslu á að styrkja skipulag sitt og verklag í samræmi við þau viðmið.

„Farið var í þessa vegferð að verða Fyrirmyndarfélag ÍSÍ með það að markmiði að auka faglegheit í rekstri og koma á skýru verklagi og auðvelda þar með komandi sjálfboðaliðum, sem koma inn í stjórn og starfsemi félagsins, vinnuna,“ sagði Ásgerður Þorleifsdóttir, stjórnarmaður í félaginu, í tilefni viðurkenningarinnar.

Viðurkenningin er mikilvægt skref fyrir Skíðafélag Ísfirðinga og staðfesting á því öfluga starfi sem unnið er innan félagsins.

Á myndinni eru þau Ingibjörg Elín Magnúsdóttir og Willum Þór Þórsson við afhendingu viðurkenningarinnar.