Skíðasamband Íslands hélt 77. Skíðaþing sitt í Drift EA á Akureyri um liðna helgi á 80 ára afmælisári sambandsins. Yfir 50 manns víðs vegar af landinu sóttu þingið og var vinnustofa um stefnumótun einn af hápunktum þess. Stjórn SKÍ vinnur nú úr niðurstöðunum og leggur afraksturinn fyrir næsta þing.
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, ávarpaði þingið og flutti kveðjur frá Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ sem og framkvæmdastjórn og starfsfólki. Hann þakkaði SKÍ fyrir gott samstarf og minnti á að þingið væri ekki aðeins vettvangur formlegra ákvarðana heldur einnig til að móta sameiginlega framtíðarsýn hreyfingarinnar.
Á þinginu var einnig kynnt ný afreksstefna SKÍ og farið yfir árangur síðasta vetrar þar sem Ólympíuleikarnir 2026 stóðu upp úr. Þá voru nokkrir af máttarstólpum skíðaíþróttarinnar á Akureyri heiðraðir með gull- og silfurmerkjum SKÍ.
Næsta Skíðaþing verður haldið á Austurlandi.
Nánar má lesa um þingið á vef SKÍ.


