Fara í efni

Skráning í annan útdrátt aðgöngumiða á Ólympíuleikana í Los Angeles 2028 (LA28) stendur nú yfir og lýkur 22. júlí 2026.

Um er að ræða annan útdrátt í miðasöluferli leikanna. Þeir sem skrá sig eiga möguleika á að fá úthlutaðan kauptíma þegar miðasalan fer fram dagana 10.–20. ágúst 2026.

Þeir sem skráðu sig í fyrsta útdráttinn en fengu ekki kauptíma, eða hafa ekki náð hámarksfjölda miða, fara sjálfkrafa áfram í annan útdrátt og þurfa því ekki að skrá sig á ný.

Hvernig virkar miðaferlið?

Miðaferlið byggir á útdráttarkerfi sem ætlað er að tryggja sanngjarna dreifingu aðgöngumiða á leikana. Skráning í útdráttinn er forsenda þess að eiga möguleika á að kaupa miða á leikana.

  • Skráðu þig í útdráttinn.
  • Útdráttur velur handahófskennt hverjir fá að kaupa fyrst.
  • Þeir sem eru dregnir fá úthlutaðan kauptíma.
  • Miðakaup fara fram á þeim tíma sem úthlutað er.

Þátttakendur fá tilkynningu um úthlutun kauptíma dagana 6.–7. ágúst, en miðasalan sjálf fer fram 10.–20. ágúst 2026.

Fyrir þau sem skrá sig í fyrsta sinn

Skráning í útdráttinn felur ekki í sér miðakaup. Þeir sem fá úthlutaðan kauptíma hafa afmarkaðan tíma til að velja og kaupa miða þegar miðasalan hefst.

Því getur verið gagnlegt að undirbúa sig fyrirfram með því að:

  • kynna sér hvaða keppnisgreinar og viðburðir vekja mestan áhuga,
  • skoða dagskrá leikanna og hvaða dagar henta best,
  • kynna sér verðflokka og miðaframboð,
  • gera lista yfir þá viðburði sem helst er stefnt að sækja.

Nánari upplýsingar um miðasöluferlið má finna á vef Ólympíuleikanna í Los Angeles 2028: la28.org/tickets.

Skráning í annan útdráttinn fer fram á tickets.la28.org.

Helstu dagsetningar

22. júlí
Skráningu í annan útdrátt lýkur.

6.–7. ágúst
Tilkynningar um úthlutun kauptíma í öðrum útdrætti.

10. ágúst
Miðasala hefst fyrir þá sem hafa fengið úthlutaðan kauptíma.

20. ágúst
Miðasölu í öðrum útdrætti lýkur.

Tengd frétt

Frestur rann út 18. mars í fyrsta útdrátt úr miðapotti aðgöngumiða á Ólympíuleikana í LA 2028.