Starfsfólk ÍSÍ fór nýverið í vinnuferð til Rómar. Ferðin var hluti af Erasmus+ styrktu verkefni og fól í sér heimsóknir og fundi með Evrópusambandi Ólympíunefnda (EOC) og ítölsku ólympíunefndinni (CONI).
Á fyrsta degi ferðarinnar átti starfsfólkið fund með Peter Brull, íþróttastjóra Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC), þar sem hann kynnti starfsemi sambandsins og helstu áherslur þess. Einnig var rætt um verkefni EOC og samstarf innan evrópsku ólympíuhreyfingarinnar.
Daginn eftir heimsótti hópurinn höfuðstöðvar ítölsku ólympíunefndarinnar (CONI) í Róm. Þar var boðið upp á skoðunarferð um húsnæðið þar sem starfsemin var kynnt og saga sambandsins rifjuð upp með áhugaverðum munum og listaverkum.
Í framhaldi af því átti starfsfólkið fund með Carlo Mornati, framkvæmdastjóra Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) og ítölsku ólympíunefndarinnar (CONI). Þar fór hann meðal annars yfir skipulag ólympíustarfs og afrekstarfs á Ítalíu, hlutverk félaga og sérsambanda og þá þætti sem hafa lagt grunn að árangri Ítala á síðustu Ólympíuleikum. Umræður gáfu starfsfólki ÍSÍ góða sýn á hvernig íþróttastarfsemi er byggð upp og studd innan ítölsku íþróttahreyfingarinnar.
Að fundi loknum var gengið um Foro Italico, eitt af þekktari íþróttasvæðum Rómar og mikilvæg miðstöð íþróttastarfs á Ítalíu. Svæðið var reist á fjórða áratug síðustu aldar við bakka Tíberfljótsins og hýsir meðal annars höfuðstöðvar CONI, Ólympíuleikvanginn og fjölmörg önnur íþróttamannvirki.
Síðar um daginn heimsótti hópurinn skrifstofu Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC), þar sem starfsfólk ÍSÍ átti óformlegan fund með fulltrúum sambandsins, þáði hressingu og fékk kynningu á Erasmus+ áætluninni og þeim tækifærum sem hún býður upp á fyrir samstarf og þróunarverkefni innan ólympíuhreyfingarinnar.
Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, segir heimsóknina hafa verið afar gagnlega:
„Höfuðstöðvar Evrópsku Ólympíunefndanna (EOC) eru staðsettar í Róm og það var virkilega ánægjulegt fyrir okkur að heimsækja þær og fræðast um starfsemi samtakanna og ítölsku ólympíunefndarinnar (CONI). Þótt Ítalía sé margfalt fjölmennari og stærri en Ísland eru sömu áskoranir í þeirra íþróttastarfi og við þekkjum í okkar umhverfi. Skipulag þeirra er í mörgu líkt því sem er á Íslandi, þar sem bæði héruð og sérsambönd eru innan þeirra vébanda. Við getum öll lært af öðrum og það er mikilvægt að leita þekkingar sem víðast.“
Gaman er að segja frá því að fjallað var um heimsókn starfsfólksins til Evrópusambands Ólympíunefnda og ítölsku ólympíunefndarinnar á heimasíðu EOC:
https://www.eurolympic.org/eoc-hosts-delegation-from-noc-of-iceland-on-visit-to-rome/





