Fara í efni

Lögbundinn frestur eininga innan íþróttahreyfingarinnar til skila á starfsskýrslum í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ rann út 15. apríl síðastliðinn en skilakerfið verður þó opið fyrir skil út miðvikudaginn 22. apríl næstkomandi, svo enn er möguleiki á að gera hreint fyrir sínum dyrum. ÍSÍ er heimilt að beita keppnisbanni á íþróttafélög sem eru í vanskilum með starfsskýrsluskil og hefur slíkt bann áhrif á alla aldurshópa viðkomandi félags, svo það er mikilvægt að standa í skilum. Aðstoð við skil og nánari upplýsingar fást hjá Elíasi Atlasyni, elias@isi.is eða í síma 514 4000.

Skil á starfsskýrslum eru gríðarlega mikilvæg því á þeim gögnum, sem skilað er inn í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ, byggjast réttindi og skyldur iðkenda og aðila innan hreyfingarinnar.