Fara í efni

Næsti fasi í stefnumótunarvinnu íþróttahreyfingarinnar er fram undan. Þar verður lögð sérstök áhersla á að móta skýr markmið, skilgreina áherslur og skerpa á framkvæmd einstakra þátta starfseminnar. Horft verður bæði til faglegra markmiða og hagnýtra atriða á borð við fjármögnun og skipulag, hlutverk einstakra eininga innan hreyfingarinnar og samstarfs.

Síðustu mánuði hefur farið fram umfangsmikill hluti af stefnumótun íþróttahreyfingarinnar. Fulltrúar hreyfingarinnar víðs vegar af landinu hafa tekið þátt í umræðum um leiðina fram undan og áherslur til framtíðar. Einnig hafa verið haldnir fjölmargir vinnufundir með þátttöku hagaðila úr samfélaginu, meðal annars frá sveitarfélögum, ríki, atvinnulífi, skólasamfélagi, háskólum og fleiri aðilum.

Efnislega hefur vinnan hingað til byggt á þremur meginsviðum: Grasrótarstarfi, afreksstarfi og samfélagslegu hlutverki íþróttahreyfingarinnar með áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Sú vinna hefur skapað sterkan grunn fyrir næstu skref verkefnisins og gefið skýrar vísbendingar um það hvar mikilvægt er að dýpka greininguna frekar og móta áherslurnar.

Vinnan í næsta fasa verður lykilþáttur í því að byggja upp öfluga og samræmda framtíðarsýn fyrir íþróttahreyfinguna til lengri tíma. Við munum áfram leggja ríka áherslu á samtal og samráð við grasrótina um allt land og byggja ákvarðanir á gögnum, reynslu og sameiginlegri sýn íþróttahreyfingarinnar.

Margir hafa þegar haft samband og lýst yfir áhuga á að taka þátt í verkefninu með okkur með einum eða öðrum hætti. Mikil verðmæti eru fólgin í þeirri þátttöku. Eftir því sem við höldum lengra á vegferð okkar og stefnumótunarvinnan þróast áfram verður ljóst að enn fleiri einstaklingar munu koma að vinnunni. Við hvetjum ykkur áfram til að hafa samband, koma með ábendingar og taka þátt í umræðunum.

Næstu skref

Í sumarbyrjun verður fyrsti hluti stefnuvinnunnar, sem snýr að framtíðarsýn og megináherslum til framtíðar, lagður fyrir stjórnir ÍSÍ og UMFÍ. Tillögurnar verða jafnframt til umræðu á formannafundi í nóvember 2026 og verða kynntar hreyfingunni í heild.

Stefnumótunarvinnan er unnin á vegum stýrihóps sem starfar í umboði stjórna UMFÍ og ÍSÍ. Markmiðið er að niðurstöður hennar verði formlega kynntar á íþróttaþingi árið 2027.

Vinnan að baki

Stefnumótun íþróttahreyfingarinnar hófst á formannafundi ÍSÍ í nóvember árið 2025. Við tók gagnaöflun og kortlagning á greiningum, viðtöl og fundir í minni hópum, markvissri upplýsingaöflun, leitað til áhugasamra sem vildu leggja af mörkum, vinnufundir haldnir um markmiðasetningu stoða og fundað með fulltrúum hagaðila um allt land.

Eftirfarandi fundir voru haldnir: 

  • 5. mars 2026: Stefnumótun á Austurlandi
  • 5. mars 2026: Raddir ungs fólks á Austurlandi
  • 16. mars 2026: Stefnumótun á Suðurnesjum.
  • 17. mars 2026: Stefnumótun á Suðurlandi.
  • 23. mars 2026: Stefnumótun á Norðurlandi vestra
  • 23. mars 2026: Raddir ungs fólks á Norðurlandi vestra.
  • 23. mars 2026: Stefnumótun á Norðurlandi eystra
  • 24. mars 2026: Raddir ungs fólks á Norðurlandi eystra
  • 8. apríl 2026: Stefnumótun Vesturland
  • 8. apríl 2026: Raddir ungs fólks á Vesturlandi
  • 11. apríl 2026: Stefnumótun Vestfjörðum
  • 11. apríl 2026: Raddir ungs fólks á Vestfjörðum
  • 15. apríl 2026: Raddir ungs fólks á höfuðborgarsvæðinu
  • 16. apríl 2026: Stefnumótun höfuðborgarsvæði.
  • 21. apríl 2026: Stefnumótun höfuðborgarsvæðið.
  • 24. apríl 2026: Raddir ungs fólks á Suðurlandi.
  • 27. apríl 2026: Raddir ungs fólks á Suðurnesjum.

Hlökkum til samstarfsins áfram með ykkur.