Fara í efni

Góð mæting var á stefnumótunarfund ÍSÍ og UMFÍ sem haldinn var í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal fimmtudaginn síðastliðinn þar sem um þrjátíu fulltrúar sérsambanda og íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu komu saman. Fundurinn var sá fyrri af tveimur sem haldnir eru á svæðinu í þessari stefnumótunarvinnu.

Markmið fundanna er að skilgreina helstu áherslur í grasrótarstarfi, afreksíþróttum og samfélagsverkefnum og vinna að sameiginlegri stefnu og framtíðarsýn fyrir íþróttahreyfinguna. Áhersla er lögð á að sameina ólíkar áherslur í eina heildstæða sýn sem styrkir hreyfinguna í heild.

Fundinum stýrði Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Expectus, í samstarfi við forsvarsfólk ÍSÍ og UMFÍ. Framtíðarsýnin byggir á því að íþróttastarf sé hornsteinn samfélagsins og aðgengilegt öllum óháð búsetu, efnahag eða félagslegum aðstæðum. Lögð er áhersla á þátttöku ungmenna, mikilvæg hlutverk sjálfboðaliða og sjálfbærni í samstarfi við stjórnvöld og samfélagið.

Síðari stefnumótunarfundurinn á höfuðborgarsvæðinu fer fram á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, klukkan 16:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fundurinn markar jafnframt lok þessa fasa stefnumótunarvinnunnar. 

Hægt er að skrá sig á fundinn hér

Hér getið þið séð myndir sem teknar voru á fundinum á fimmtudeginum sl.. Ljósmyndari Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, UMFÍ