Fara í efni

Stefnumótunarfundir íþróttahreyfingarinnar halda áfram og nú er komið að stórhöfuðborgarsvæðinu. Á undanförnum vikum hafa verið haldnir opnir stefnumótunarfundir víða um land þar sem fulltrúar íþróttahéraða, íþróttafélaga og annarra hagaðila ræddu stöðu og framtíðarsýn íþróttastarfsins. Markmið fundanna er að skilgreina helstu áherslur í grasrótarstarfi, afreksstarfi og samfélagsverkefnum og móta þannig sameiginlega stefnu fyrir hreyfinguna. Þessir fundir hafa reynst afar gagnlegir og útkoman nýtist vel í þeirri vinnu sem framundan er.

 Fundurinn fyrir stórhöfuðborgarsvæðið verður haldinn 16. apríl kl. 17:00–19:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Nauðsynlegt er að bæði sérsambönd og íþróttahéruð sendi fulltrúa á fundinn. Einnig er óskað eftir þátttöku íþróttafélaganna sjálfra, sérstaklega þeirra stærri. Þeim gefst þar tækifæri til að koma áherslum sínum og sjónarmiðum á framfæri. 

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig fyrirfram þar sem hafa þarf yfirsýn yfir fjölda til að tryggja viðeigandi aðstöðu.

 Skráning:https://bit.ly/4vn81lD