Fara í efni

Ársþing Skotíþróttasambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 25. apríl síðastliðinn og var þetta í 48. sinn sem þingið fer fram.

Á þinginu var stjórn Skotíþróttasambands Íslands endurkjörin í heild sinni. Stjórn STÍ er því áfram skipuð Halldóri Axelssyni formanni, Jórunni Harðardóttur varaformanni, Guðmundi Kr. Gíslasyni gjaldkera og Ómari Erni Jónssyni meðstjórnanda í aðalstjórn. Í varastjórn voru Valur Richter og Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir kjörin.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, sótti þingið og flutti ávarp til þingfulltrúa. Jafnframt var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ viðstaddur. Þingforseti var Jón S. Ólason, fyrrverandi formaður STÍ.

Alls sóttu 32 þingfulltrúar frá 11 aðildarfélögum STÍ þingið en fimm félög sáu sér ekki fært að mæta að þessu sinni.

Á þinginu voru lög sambandsins uppfærð og samþykktar töluverðar breytingar. Umræður voru málefnalegar og ríkti almenn sátt um afgreiðslu helstu mála.