Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
Skráning:
Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka. Nýir notendur í Sportabler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“ Upplýsingar um verð er að finna þarna við skráningu í Abler.
Þetta segja þátttakendur um helstu kosti námsins:
„Hversu djúpt er farið í námsefnið og að það sé alþjóðlega tengt, í takti við það sem er verið að gera út í heimi.”
„Mér líður allan tímann þannig að ég sé að læra með tilgangi“
„Gott aðgengi að kennara þrátt fyrir fjarnám“
„Mjög gagnlegt nám og mikilvægt að þjálfarar og þeir sem hafa áhuga á þjálfarastarfinu geti sótt það á svona einfaldan máta“
„Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn“
Allar nánari upplýsingar veitir:
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviðið ÍSÍ
Sími; 514-4000 / 863-1399
Netfang: vidar@isi.is; 514-4000 / 863-1399
