Fara í efni

Sólveig Freyja Hákonardóttir og Alexander Ari Andrason hafa lokið keppni í sundi á Ólympíuleikum ungmenna í Dakar í Senegal. Þau syntu þrjár greinar hvort, settu bæði persónuleg met og mega vera stolt af frammistöðu sinni. Þátttaka á leikum sem þessum er svo sannarlega dýrmæt reynsla fyrir ungt íþróttafólk.

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00027.jpeg?v=1794142286

Alexander Ari var hársbreidd frá úrslitum í 50 m flugsundi. Hann synti á 25,40, bætti sinn besta tíma um 25 hundraðshluta og hafnaði í 9. sæti af 34 keppendum. Átta efstu komust í úrslit og var Alexander fyrsti varamaður. Í 100 m flugsundi synti hann á 56,82 og varð tíundi af 30 keppendum. Í gær lauk hann keppni í 200 m flugsundi, synti á 2:14,33 og hafnaði í 9. sæti af 11 keppendum.

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00029.jpeg?v=1794142287

Sólveig Freyja bætti sig í 50 m baksundi þegar hún synti á 32,66, en áður átti hún best 33,12. Hún vann sinn riðil. Í 400 m skriðsundi synti hún á 4:38,76 og varð í 12. sæti af 21 keppanda. Í gær synti hún 200 m skriðsund á 2:11,40 og hafnaði í 14. sæti af 33 keppendum.

Hrafnhildur Lúthersdóttir fylgdi sundfólkinu sem þjálfari og heldur heim með því að keppni lokinni. Brynja Guðjónsdóttir aðalfararstjóri og Ólafur Engilbert Árnason sjúkraþjálfari verða áfram í Dakar og taka á móti skylmingamanninum Ara Vilberg Jónassyni og Gunnari Agli Ágústssyni þjálfara hans þegar þeir koma 9. nóvember.

Sólveig Freyja og Alexander Ari voru glæsileg sem fánaberar Íslands á setningarhátíð leikanna 31. október. Foreldrar þeirra létu sig ekki vanta, mættu vopnuð íslenskum fánum og héldu uppi stemningunni í stúkunni þegar sundfólkið keppti. Íslenski hópurinn sýndi þeim svo Ólympíuþorpið.

Hiti og hlýjar móttökur

Aðstæður í Dakar eru ólíkar því sem íslenskt íþróttafólk á að venjast. Hitinn er oftast 31–33 gráður og hefur verið stærsta áskorunin á leikunum. Sundhópurinn brást við honum með söltum, kælihandklæðum og miklu vatni, og hitinn vandist smám saman. Keppt var í útilaug og ferðin á æfingar og í keppni tók um tvo tíma hvora leið, með rútu, lest og aftur rútu.

„Stemningin hér er öðruvísi en við erum vön. Heimafólkið er frekar rólegt, sem við mættum alveg tileinka okkur inn á milli spretta, og einstaklega vinalegt og notalegt við okkur,“ segir Brynja.

Í Ólympíuþorpinu er stórt tjald fyrir afþreyingu og fræðsluleiki, þar sem keppendur alls staðar að úr heiminum hittast, spjalla og kynnast. Þar er líka kæling, sem er kærkomin í hitanum.

Íslenski hópurinn hefur þó ekki lokið keppni í Dakar. Ari Vilberg keppir í höggsverði á lokadegi leikanna, 13. nóvember, og verður svo fulltrúi Íslands á lokahátíðinni sama kvöld. Við hlökkum til að fylgjast með honum og óskum honum góðs gengis.

Áfram Ísland!

Hér má sjá nokkrar myndir frá leikunum hjá ungmennunum:

Flagbearers Solveig Freyja Hakonardottir ISL and Alexander Ari Andrason ISL carry the national flag of Iceland ,Flagbearer Hannah Shochan IRL carries the national flag of Ireland and Flagbearers Ofir Simcha ISR and Itamar Cohen ISR carry the national flag of Israel during the Parade of NOC flags during the Opening Ceremony at the Abdoulaye Wade Stadium at the Dakar 2026 Youth Olympic Games, Diamniadio, Senegal. Saturday 31 October 2026. Photo: OIS/Felix Diemer. Handout image supplied by OIS/IOC
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00018.jpeg?v=1794142281
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00014.jpeg?v=1794142278
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00011.jpeg?v=1794142277
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00020.jpeg?v=1794142282
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00010.jpeg?v=1794142276
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00004.jpeg?v=1794142273
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00002.jpeg?v=1794142272
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/8e00bb1a-80fd-4892-98a3-a4ce7cc639ac.JPG?v=1794141166
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/d4ec1e1d-d10f-47cf-84dd-32371adf3aed.JPG?v=1794141162
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/857a9da1-7264-46fc-824c-e0660f645158.JPG?v=1794141160