Fara í efni

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við Sundsamband Íslands, stendur fyrir Syndum, árlegu landsátaki í sundi, dagana 1.–30. nóvember. Átakið er nú haldið í sjötta sinn. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna, enda er sund fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.

Markmiðið er að hvetja fólk til að hreyfa sig oftar og meira í daglegu lífi og nýta sundið til þess. Sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungun og vöðva líkamans og er bæði frábær leið til að hlúa að heilsunni og skemmtileg tómstundaiðja.

Hversu marga hringi syndum við í ár?
Allir metrar sem þátttakendur synda safnast saman og á forsíðu syndum.is má fylgjast með því hversu margir hringir hafa verið syntir um landið. Þegar átakið var fyrst haldið árið 2021 voru syntir 11,6 hringir. Í fyrra voru syntir um 19.281 km, sem samsvarar um 14,5 hringjum í kringum Ísland. Markmiðið í ár er að fá enn fleiri með og gera betur.

Einfalt að taka þátt
Til að taka þátt er farið í Mínar skráningar á syndum.is, valið notendanafn og lykilorð og byrjað að skrá sundvegalengdir. Á síðunni er einnig að finna ýmsan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.

Skráðir þátttakendur geta átt von á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

Gríptu sundfötin og vertu með – syndum saman í nóvember!