Niðurtalningin er hafin að Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 en tæp tvö ár eru nú þar til setningarhátíð leikanna fer fram þann 14. júlí 2028. Leikarnir verða haldnir í borginni í þriðja sinn en Los Angeles var áður gestgjafi Ólympíuleikanna 1932 og 1984.
Setningarhátíðin verður haldin á tveimur stöðum, Los Angeles Memorial Coliseum og leikvanginum í Inglewood. Los Angeles Memorial Coliseum verður þar með fyrsti keppnisstaðurinn í sögu Ólympíuleikanna sem hýsir keppni á þrennum leikum.
Á leikunum í Los Angeles verður keppt í 36 íþróttagreinum og alls verða 353 verðlaunakeppnir á dagskrá, sem er fjölgun frá Ólympíuleikunum í París árið 2024. Þá verða fleiri blandaðar keppnisgreinar en áður auk þess sem ýmsar nýjungar bætast við keppnisdagskrána.
Meðal nýrra íþróttagreina á Ólympíuleikunum í Los Angeles verða hafnabolti, mjúkbolti, krikket, flag football, lacrosse og skvass. Einnig verða nýjar blandaðar keppnisgreinar teknar upp í meðal annars frjálsíþróttum, bogfimi, golfi, róðri og borðtennis.
Ólympíuleikarnir 2028 marka einnig tímamót á sviði jafnréttis í íþróttum. Í fyrsta sinn í sögu leikanna verða konur fleiri en karlar meðal keppenda. Gert er ráð fyrir að alls taki 11.198 íþróttamenn þátt í leikunum, þar af 5.635 konur og 5.563 karlar. Jafnframt verður áfram lögð áhersla á jafnvægi kynjanna í keppnisgreinum og liðakeppnum.
Lokahátíð leikanna fer síðan fram 30. júlí 2028 á Los Angeles Memorial Coliseum. Á næstu tveimur árum mun íslenskt afreksíþróttafólk leggja hart að sér við að ná þeim árangri sem þarf til að tryggja sér þátttökurétt á leikunum og ÍSÍ mun að sjálfsögðu fylgjast vel með þeirri vegferð.
Áhugasamir geta kynnt sér leikana og fylgst með undirbúningi þeirra hérna á opinberri heimasíðu LA28
