Dagur sjálfboðaliðans er haldinn 5. desember ár hvert víða um heim. Í tilefni dagsins vilja ÍSÍ og UMFÍ, í samstarfi við svæðisstöðvar íþróttahéraða, þakka sjálfboðaliðum í íþróttahreyfingunni fyrir framlag þeirra.
Sjálfboðaliðar halda íþróttastarfinu gangandi um allt land. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægu starfi þeirra og sýna þakklæti í verki. Þetta er ekki keppni um hver leggur mest af mörkum. Framlag hvers og eins skiptir máli.
Svona fer tilnefningin fram
Íþróttahéruð og sérsambönd eru hvött til að tilnefna sjálfboðaliða úr sínum röðum. Tilnefningunni þarf að fylgja stuttur rökstuðningur og frestur er til og með 27. nóvember. Svæðisstöðvarnar styðja við verkefnið á hverju svæði.
Dregið verður úr tilnefningum fyrir hvert landsvæði 1. desember. Sá sem dreginn verður út fær lítinn þakklætisvott og verður fjallað um hann á miðlum ÍSÍ og UMFÍ í kringum Dag sjálfboðaliðans. Hver einstaklingur fer aðeins einu sinni í pottinn, sama hversu margar tilnefningar hann fær.
Við hvetjum félög og alla innan íþróttahreyfingarinnar til að deila hlekknum. Því fleiri tilnefningar, því betur sést hversu öflugt sjálfboðaliðastarfið er.
