Fara í efni

Íþróttastarf innan hreyfingarinnar heldur áfram að vaxa. Samkvæmt nýjum tölum ÍSÍ og UMFÍ fyrir starfsárið 2025 voru skráðar iðkanir 191.982 sem er fjölgun um 10.572 frá fyrra ári eða 5,8%. Tölurnar byggja á skýrslum 507 íþróttafélaga innan 25 íþróttahéraða og 34 sérsambanda.

Nær þriðjungur landsmanna í íþróttastarfi

Á bak við iðkanirnar standa 121.969 iðkendur sem samsvarar um 31% landsmanna. Iðkendum fjölgaði um 4,3% milli ára á sama tíma og landsmönnum fjölgaði um 1,3%.

Munurinn á iðkunum og iðkendum skýrist af því að margir æfa fleiri en eina grein eða hjá fleiri en einu félagi og teljast þá oftar en einu sinni sem iðkun.

Golf og knattspyrna orðin nánast jafnstór

Iðkunum fjölgaði í 22 af 34 greinum sérsambanda. Golf og knattspyrna eru nú fjölmennustu greinarnar og nánast jafnstórar, með 32.670 og 32.648 iðkanir. Fyrir ári voru iðkanir í knattspyrnu rúmlega 4.000 fleiri en í golfi en iðkunum í golfi fjölgaði um 4.625 milli ára.

Af greinum sérsambanda varð næstmest fjölgun í sundi og badmintoni.

Fullorðnir sækja í sig veðrið

Börn og ungmenni eru áfram stærsti hópurinn, með 55,5% allra iðkana. Fjölgunin var þó hlutfallslega mest meðal fullorðinna, eða 7,8%, og skýrir golfið stóran hluta þeirrar aukningar.

Greinarnar höfða til ólíkra aldurshópa. Í knattspyrnu eru 82,9% iðkana hjá 17 ára og yngri en í golfi eru 84,3% iðkana hjá 18 ára og eldri.

Hvað kynjaskiptingu varðar voru alls 40,8% iðkana hjá konum og 59,2% hjá körlum. Iðkunum kvenna fjölgaði þó hlutfallslega meira, eða um 6,4% á móti 5,5% hjá körlum. Mest var fjölgunin hjá konum 18 ára og eldri, eða 10,2%.

Golf er sú grein þar sem iðkunum kvenna fjölgaði mest, um 1.144. Konur standa þannig fyrir um fjórðungi af fjölguninni í golfi.

Íþróttastarf um allt land

Iðkunum fjölgaði í 20 af 25 íþróttahéruðum. Í héruðum utan höfuðborgarsvæðisins var fjölgunin 8,5%, nær tvöfalt meiri en á höfuðborgarsvæðinu.

Knattspyrna er útbreiddasta greinin og er iðkuð í 24 af 25 íþróttahéruðum, en golf er fjölmennasta greinin í flestum þeirra, eða tíu. Hestaíþróttir eru fjölmennastar í sex héruðum.

Nánari tölfræði

Ítarlegri tölur eftir greinum, héruðum, aldri og landshlutum má finna á hér.