Ný tölfræðisamantekt fyrir 1. og 2. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ sumarið 2026 sýnir góða þátttöku og fjölbreyttan nemendahóp. Alls sóttu 56 nemendur námið og komu þeir úr 17 íþróttagreinum og 12 íþróttahéruðum víðs vegar að af landinu.
Fimleikar voru fjölmennasta íþróttagreinin að þessu sinni með sjö nemendur en þar á eftir komu sund með sex nemendur og blak og frjálsíþróttir með fimm nemendur hvort um sig. Dreifing þátttakenda milli íþróttagreina var óvenju mikil sem endurspeglar breiðan áhuga á þjálfaramenntun þvert á íþróttagreinar.
Kynjaskipting nemenda var 31 kona og 25 karlar. Hlutfall kvenna er því aftur orðið örlítið hærra sem er í samræmi við það sem oftast hefur sést í náminu. Á vorönninni var staðan óvenjuleg þar sem karlar voru fleiri en konur.
Nemendur komu frá 12 íþróttahéruðum. HSK var fjölmennast með 12 nemendur, ÍBR með 11 og ÍBA með níu. Dreifingin milli héraða er nokkuð sambærileg því sem áður hefur verið, þó eðlilegar sveiflur sjáist milli ára og námskeiða.
Aldurssamsetning hópsins sýnir jafnframt breidd í þátttöku. Langstærsti hópurinn var á aldrinum 16-25 ára og taldi 34 nemendur eða 61% þátttakenda. Hlutfall yngsta aldurshópsins er hærra en oft áður sem bendir til þess að fleiri ungir þjálfarar séu að afla sér formlegrar menntunar snemma á þjálfaraferlinum. Nemendur voru á aldrinum 16 til 64 ára.
Heildarþátttaka á þessum tveimur stigum var meiri en oftast áður og undirstrikar þann mikla áhuga sem er innan íþróttahreyfingarinnar á þjálfaramenntun og faglegri þróun.
Hér fyrir neðan er nánari sundurliðun eftir íþróttagreinum, íþróttahéruðum, kyni og aldri.




