Tveir fulltrúar úr hópi umsækjenda taka þátt fyrir Íslands hönd í hinu virta Young Olympic Ambassadors (YOA) námskeiði sem fram fer í Ólympíu í Grikklandi dagana 6.–18. júní.
Fulltrúar Íslands að þessu sinni eru:
• Hildur Helga Einarsdóttir, Selfossi
• Ástþór Jón Ragnheiðarson, Hellu
Námskeiðið er haldið á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar (IOA) og hefur það að markmiði að leiða saman ungt fólk á aldrinum 20–30 ára frá öllum heimshornum. Þar fá þátttakendur tækifæri til að dýpka þekkingu sína á gildum Ólympíuhreyfingarinnar og efla alþjóðleg tengsl.
Á dagskránni er meðal annars:
• Fyrirlestrar frá fræðimönnum og sérfræðingum
• Hópavinna og umræður um málefni íþróttahreyfingarinnar
• Menningarheimsóknir og íþróttaiðkun
Meginþema námskeiðsins í ár er:
„Empowering Inclusion, Integrity and Responsibility for Every Athlete“.
Dagskráin hefst í Aþenu og lýkur í hinni sögulegu Ólympíu.
ÍSÍ óskar þeim Hildi Helgu og Ástþóri Jóni velfarnaðar í verkefninu og góðrar ferðar.
