Fara í efni

Íþróttavika Evrópu #BeActive fór fram dagana 23. til 30. september. Um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir voru haldnir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt.

Ísland hefur tekið þátt í Íþróttaviku Evrópu frá árinu 2015. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu í gegnum framkvæmdastjórn Evrópu (European Commission).

Fleiri umsóknir en í fyrra

ÍSÍ sækir um styrkinn og úthlutar honum til framkvæmdaaðila. Í ár bárust 56 umsóknir, fleiri en árið á undan. Styrkt voru 28 sveitarfélög, 5 íþróttahéruð og 18 framhaldsskólar. Styrkþegar fengu svo íþróttafélög og heilsutengda starfsemi í sínu nærumhverfi til liðs við sig. Yfirlit yfir viðburði má finna á www.beactive.is.

Hreyfing á eigin forsendum

Fjölbreytnin stóð upp úr. Gusur voru haldnar víða um land og Bangsaganga upp á Úlfarsfell vakti mikla athygli. Einnig voru á dagskrá óhefðbundnir viðburðir eins og Hobby Horse og sundballett. Þar að auki var boðið upp á zumba, fjölbreytta göngu- og heilsuviðburði og fræðslu um mataræði, svefn og þátttöku í íþróttum. Allt var þetta í anda skilaboða ársins: „Be active your way“.

Ekki síst var ánægjulegt að sjá hversu víðtæk þátttakan var. Hún náði um allt land, jafnt til stórra sveitarfélaga sem smárra.

#BeActiveNight

#BeActiveNight, laugardaginn 26. september, var einn af hápunktum vikunnar. Áherslan var á skemmtun í vatni. Í Nauthólsvík var boðið upp á sjóbað og zumba og í sundlaugum víða um land var samflot og zumbapartý fyrir allan aldur.

Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ

Undir Íþróttaviku Evrópu falla einnig Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ. Göngum í skólann var sett í Árskóla á Sauðárkróki 4. september og tóku 55 skólar þátt. Ólympíuhlaup ÍSÍ var sett í Dalvíkurskóla 3. september og geta skólar hlaupið fram að áramótum.

Samfélagsmiðlar voru líflegir á meðan vikan stóð yfir og fjölmargir merktu efni með #beactiveiceland.

Íþróttavika Evrópu tókst einstaklega vel í ár. ÍSÍ þakkar sveitarfélögum, skólum, íþróttahreyfingunni og öllum sem tóku þátt kærlega fyrir.

Fleiri myndir frá vikunni má finna hér.

 

/cdn/media/Frettamyndir/809537790_1091480173398188_2074711268798324209_n.jpg?v=1791797818
/cdn/media/Frettamyndir/818910406_1575212091070059_1998107752596743910_n.jpg?v=1791797818
/cdn/media/Frettamyndir/800130803_1042403625328866_6677679613512172948_n.jpg?v=1791797817
/cdn/media/Frettamyndir/Flotnamskeid-i-Sundlauginni-i-Budardal.jpg?v=1791797819
/cdn/media/Frettamyndir/20260904_103829.jpg?v=1791798086