Fara í efni

Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er nú opið fyrir umsóknir um styrki vegna styrkhæfra keppnisferða innanlands á árinu 2026. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 11. janúar 2027.

Íþrótta- og ungmennafélög geta þegar hafið vinnu við umsóknir sínar. Það getur einfaldað umsóknarferlið og dregið úr vinnu þegar kemur að skilum umsóknar í upphafi næsta árs.

Umsóknir

  • Hægt er að stofna umsókn og skrá ferðir jafnóðum og þær eru farnar.
  • Við stofnun umsóknar er vefslóð send á skráð netfang tengiliðar. Mikilvægt er að varðveita hana vel þar sem hún veitir aðgang að umsókninni þar til henni hefur verið skilað inn.

Styrkhæf mót

  • Í hópíþróttum eru einungis Íslandsmót styrkhæf.
  • Í einstaklingsíþróttum eru einnig styrkhæf bikarmót, meistaramót og mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils.
  • Mót sem ekki birtast á mótalista viðkomandi greinar eru ekki styrkhæf.

Aukið fjármagn til Ferðasjóðs árið 2026
Ferðasjóður hefur fengið 100 milljóna króna viðbótarframlag frá ríkisvaldinu til úthlutunar vegna ferða ársins 2026. Viðbótarframlagið bætist við hefðbundið framlag til sjóðsins.

Heildarfjárhæð til úthlutunar nemur því 223,9 milljónum króna og verður henni úthlutað til íþrótta- og ungmennafélaga sem sækja um styrk úr sjóðnum.

Um er að ræða tímabundið viðbótarframlag og hefur aukið fjármagn til sjóðsins ekki verið tryggt til framtíðar. Áfram verður þó unnið að því að tryggja aukinn og varanlegan stuðning við sjóðinn.

Nánari upplýsingar

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að hafa samband við Jón Reyni Reynisson hjá ÍSÍ - jon@isi.is