Fara í efni

Opið er fyrir umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar og verður hægt að senda inn umsóknir til og með 15. september næstkomandi. 

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er samstarfssjóður ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Markmið sjóðsins er að styðja verkefni sem auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og stuðla að auknum jöfnuði í íþróttastarfi. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem efla þátttöku barna með fötlun og barna frá tekjulægri heimilum.

Á síðasta ári hlutu 154 verkefni styrki úr sjóðnum að fjárhæð samtals 86,6 milljónir króna. Á þessu ári hefur þegar farið fram ein úthlutun þar sem 31 verkefni hlaut styrk af 63 umsóknum sem bárust og nam heildarúthlutunin rúmum 14,3 milljónum króna.

Hverjir geta sótt um?

Eftirtaldir aðilar innan íþróttahreyfingarinnar geta sótt um styrk úr sjóðnum:

  • Íþróttahéruð
  • Íþróttafélög og/eða deildir þeirra
  • Sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög og/eða deildir félaga

Styrkir eru veittir til verkefna sem:

  • Auka útbreiðslu og þátttöku barna og ungmenna í íþróttum
  • Efla þátttöku barna með fötlun
  • Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum
  • Stuðla að auknum jöfnuði í íþróttastarfi

Við hvetjum öll félög og aðila innan íþróttahreyfingarinnar til að kynna sér sjóðinn og nýta tækifærið til að sækja um styrk fyrir verkefni sem stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna í íþróttum.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2026 - SÆKJA UM 

Nánari upplýsingar um hvatasjóðinn

Úthlutunarreglur.