Fara í efni

Fundur aðalfararstjóra vegna Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar (EYOF), sem fram fer í Brașov í Rúmeníu 14.–21. febrúar 2027, var haldinn í borginni nú í september. Brynja Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Afreksmiðstöð Íslands, sótti fundinn á vegum ÍSÍ. Líney Rut Halldórsdóttir, stjórnarmaður í EOC og formaður EYOF-nefndar sambandsins, sat þar einnig í pallborði.

Alls tóku 49 Ólympíunefndir þátt, 38 á staðnum og 11 í gegnum netið. Skipuleggjendur fóru yfir stöðu undirbúnings á öllum sviðum, allt frá gistingu og samgöngum til öryggismála og keppnishalds.

Seinni daginn skoðuðu fararstjórar og fulltrúar EOC Ólympíuþorpin í Poiana Brașov og Cheile Grădiștei og keppnisstaðina. Íslenski hópurinn mun dvelja í báðum þorpunum.

„Við fórum í skoðunarferð um þorpin og keppnisstaðina. Aðbúnaðurinn er góður og bæði keppnisaðstaðan og aðrar aðstæður eru til fyrirmyndar,“ segir Brynja.

Keppt verður í eftirfarandi greinum á sjö stöðum:

  • Poiana Brașov: alpagreinum
  • Cheile Grădiștei: skíðaskotfimi, listhlaupi á skautum, skautahlaupi á stuttri braut og fjallaskíðun
  • Predeal: skíðagöngu og snjóbrettum
  • Râșnov: skíðastökki
  • Brașov: íshokkí karla
  • Târgu Secuiesc: íshokkí kvenna
  • Sfântu Gheorghe: 3x3 íshokkí karla og kvenna

Íslenski hópurinn fyrir EYOF 2027 verður kynntur síðar.

/cdn/media/Frettamyndir/Brasov_liney.jpeg?v=1791905754
Líney Rut Halldórsdóttir, formaður EYOF-nefndar EOC, í pallborði á fundinum
/cdn/media/Frettamyndir/brasov_skodunarferd3.jpg?v=1791905850
/cdn/media/Frettamyndir/Brasov_skodunarferd2.jpg?v=1791905848
/cdn/media/Frettamyndir/Brasov_skodunarferd.jpg?v=1791905848