Nú er tæpt ár þar til Sumar-Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF) 2027 hefst í Lignano Sabbiadoro á Ítalíu en hún fer fram dagana 24. júlí til 1. ágúst 2027. Í lok júlí komu fulltrúar Evrópsku Ólympíunefndanna (EOC), skipuleggjendur og aðrir gestir saman í borginni til að fara yfir stöðu undirbúningsins og næstu skref fram að setningu leikanna. Meðal gesta voru Laura Giorgi, borgarstjóri Lignano Sabbiadoro, Eros Bologna úr EYOF-nefnd EOC og fulltrúar frá Progetto Autismo-samtökunum. Einnig var athygli vakin á lukkudýri leikanna, Doro eðlunni, sem varð til í hönnunarsamkeppni meðal nemenda á svæðinu.
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar er mikilvægur vettvangur fyrir ungt íþróttafólk víðs vegar að úr Evrópu. Fyrir marga þátttakendur er þetta fyrsta reynslan af alþjóðlegum fjölíþróttaviðburði á vettvangi ólympíuhreyfingarinnar. Gert er ráð fyrir að um 4.000 íþróttamenn á aldrinum 14 til 18 ára taki þátt í 14 íþróttagreinum.
Þetta verður í fyrsta sinn sem sama borg heldur hátíðina tvisvar en Lignano Sabbiadoro var einnig gestgjafi hennar árið 2005. Svæðið Friuli Venezia Giulia hefur jafnframt reynslu af móttöku stórra íþróttaviðburða en þar fór Vetrar-Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fram árið 2023.
Líney Rut Halldórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍSÍ, er formaður EYOF-nefndar Evrópsku Ólympíunefndanna (EOC) og situr jafnframt í framkvæmdastjórn samtakanna. Hún hefur því komið náið að undirbúningi og þróun hátíðarinnar innan EOC og segir mikla tilhlökkun vera fyrir leikunum.
„Við hlökkum mikið til EYOF 2027 og þess að snúa aftur til Lignano Sabbiadoro, 22 árum eftir að borgin hélt hátíðina fyrst. Þetta er frábær staðsetning í fallegum hluta Ítalíu sem býður ungu íþróttafólki einstakt tækifæri til að upplifa fjölíþróttaviðburð af þessu tagi. Það er einnig mikill styrkur að Friuli Venezia Giulia-héraðið býr yfir verðmætri reynslu eftir að hafa haldið Vetrar-Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar árið 2023.“
Með tæpt ár til stefnu verður spennandi að sjá hvaða unga íslenska íþróttafólk tryggir sér sæti á leikunum á Ítalíu sumarið 2027.
