Fara í efni

ÍSÍ og UMFÍ kynna skýrsluna Raddir ungs fólks á morgun, fimmtudaginn 26. nóvember. Kostnaður, gæði þjálfunar, ferðalög og ótímabær afreksvæðing brenna á ungu fólki.

Kostnaður við íþróttaiðkun, æfingatímar, of snemmbær afreksvæðing og gæði þjálfunar eru meðal þess sem ungmenni á aldrinum 15–25 ára segja að þurfi að breytast í íþrótta- og æskulýðsstarfi á Íslandi. Þetta kemur fram í skýrslunni Raddir ungs fólks.

Þetta er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ og verða niðurstöður skýrslunnar kynntar á morgun, fimmtudaginn 26. nóvember, kl. 16:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hefur boðað komu sína á fundinn og von er á fjölda annarra gesta.

Raddir ungs fólks í hnotskurn

Skýrslan byggir á átta samráðsfundum sem haldnir voru víða um land vorið 2026. Þar settust ungmenni niður með fulltrúum íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga, skóla og stjórnvalda og ræddu um íþróttastarf frá ýmsum hliðum. Verkefnið var styrkt af Erasmus+.

Á meðal annars efnis í skýrslunni sem er ungu fólki ofarlega í huga:

  • Leiðir til að sporna gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.

  • Leiðir til að gera íþróttastarf aðgengilegra og fjölbreyttara.

  • Hvernig íþróttastarf getur svarað betur þörfum og væntingum ungs fólks.Hvað þarf að breytast.

Útgáfuhófið verður ekki beint hefðbundinn kynningarfundur heldur lifandi samtal þar sem ungt fólk verður í forgrunni.

Dagskráin:

  • Helstu niðurstöður skýrslunnar.

  • Samtal við ungmenni sem tóku þátt í verkefninu.

  • Ólafur Stefánsson handboltakappi segir frá upplifun sinni af verkefninu en hann tók virkan þátt í öllum fundum.

  • Pallborð með fulltrúum ungs fólks, íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og stjórnvalda um spurninguna: Hvað ætlum við að gera við það sem unga fólkið hefur sagt okkur?

Hagnýtar upplýsingar um útgáfuhófið

Hvenær: Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 kl. 16:00–17:30.

Hvar: Íþróttamiðstöðin í Laugardal, Engjavegur 6, 3. hæð, 104 Reykjavík.

Sýnt verður frá útgáfuhófinu í beinu streymi. Hlekkur kemur á alla helstu miðla ÍSÍ og UMFÍ tímanlega fyrir viðburðinn.