Undirbúningur úthlutunar starfslauna afreksíþróttafólks fyrir árið 2027 er hafinn. Sérsambönd ÍSÍ fengu umsóknargögn send í síðustu viku og vinna nú að því að tilnefna íþróttafólk sem uppfyllir skilyrði sjóðsins. Að því loknu metur Afreksmiðstöð Íslands umsóknirnar og vinnur úr þeim áður en tillaga um úthlutun er lögð fram.
Starfslaunin eru mikilvægur hluti af stuðningsumhverfi íslensks afreksíþróttafólks. Þau skapa svigrúm til að sinna æfingum, keppni og öðru sem fylgir því að stunda íþróttir á hæsta stigi.
Íþróttafólk á starfslaunum nýtur jafnframt þjónustu Afreksmiðstöðvar Íslands og hefur lýst því hve miklu sá stuðningur skiptir. Ein þeirra er lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir, íþróttamaður ársins 2025, en hún ræddi reynslu sína eftir erfitt meiðslatímabil í viðtali við Sýn fyrr á árinu:
„Ég fékk svo ótrúlega mikinn stuðning frá fólkinu upp í Afreksmiðstöðinni. Þau voru alltaf að hringja, tékka á mér og hjálpuðu mér. Eins eftir á er ég með mitt teymi hjá Afreksmiðstöðinni sem hittist reglulega, tekur stöðuna og kannar hvernig ég hafi það. Þau gripu mig algjörlega.“
„Þetta er bara eins og atvinnumannaumhverfi á að vera,“ sagði Eygló enn fremur.
Ummæli hennar endurspegla þá heildrænu nálgun sem starf Afreksmiðstöðvar Íslands byggir á. Stuðningurinn felst meðal annars í sérfræðiþjónustu á sviði næringar, sálfræði, styrktar- og þrekþjálfunar, heilsuverndar og endurhæfingar. Þjónustan nær ekki aðeins til einstaklinga heldur einnig til landsliða. Kvennalandslið Íslands í handbolta vinnur til að mynda þessa dagana með sérfræðingum miðstöðvarinnar að því að vera í toppstandi þegar EM 2026 hefst 3. desember.
Tilkynnt verður um úthlutun starfslauna 22. október.
Nánari upplýsingar um starfslaunin er að finna hér
