Fara í efni

Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu Leikskálum í Vík fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn. USVS er þrettánda íþróttahéraðið sem hlýtur þessa viðurkenningu.

Það var Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, sem afhenti Jóhanni Braga Elínarsyni, formanni USVS, viðurkenninguna. Að afhendingu lokinni flutti Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handknattleik, fyrirlestur fyrir gesti.

Í tengslum við innleiðingu verkefnisins hefur USVS tekið saman gæðahandbók sem styður við daglegt starf og áframhaldandi þróun sambandsins.

„Við erum afar stolt af því að þessi áfangi sé í höfn. Að hafa farið í gegnum þessa vinnu og verið tekin í hóp Fyrirmyndarhéraða ÍSÍ sýnir metnað okkar fyrir faglegu og vönduðu starfi. Handbókin mun án nokkurs vafa styðja vel við starfsemi sambandsins, bæði í dag og til framtíðar,“ sagði Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, framkvæmdastjóri USVS, af þessu tilefni.

Nánar má lesa um viðurkenninguna á heimasíðu USVS: https://www.usvs.is/usvs-er-fyrirmyndarherad-isi/

Ólafur Stefánsson hélt fyrirlestur fyrir gesti
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, hélt ræðu.