Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) hélt ársþing sitt mánudaginn 17. apríl síðastliðinn. Alls sátu 42 þingfulltrúar þingið af 78 mögulegum og var kynjahlutfall þannig að 45% þingfulltrúa voru konur og 55% karlar.
Þingforseti var Ingvar Már Gíslason sem stýrði þinginu af festu og fagmennsku. Formaður ÍBA flutti skýrslu stjórnar og voru ársreikningar lagðir fram og samþykktir samhljóða.
Á þinginu afhenti Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands silfurmerki ÍSÍ til Birnu Baldursdóttur, fráfarandi varaformanns ÍBA en fulltrúi stjórnar ÍBA tók við merkinu í fjarveru hennar.
Golfklúbbur Akureyrar hlaut einnig endurnýjun á viðurkenningu sinni sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Heimir Örn Árnason, stjórnarmaður í framkvæmdastjórn ÍSÍ, afhenti Steindóri Ragnarssyni, framkvæmdastjóra Golfklúbbs Akureyrar, viðurkenningun.
Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu og voru þær allar samþykktar að lokinni umfjöllun í nefndum og í þingsal. Þar á meðal voru lagabreytingartillögur, tillaga um breytingar á fyrirkomulagi við val á Íþróttafólki ársins hjá ÍBA og hvatningartillaga um eflingu Ferðasjóðs íþróttafélaga.
Kosning nýrrar stjórnar fór fram á þinginu og skipa hana nú: Jóna Jónsdóttir formaður, Jón Steindór Árnason, Sigrún Árnadóttir, María Aldís Sverrisdóttir, Íris Egilsdóttir, Siguróli Magni Sigurðsson og Finnur Friðriksson.
Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru Heimir Örn Árnason úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ.


