Fara í efni

UMFÍ hélt 46. sambandsráðsfund sinn á Ísafirði laugardaginn 10. október og sóttu hann um 70 manns. Formenn og framkvæmdastjórar allra íþróttahéraða landsins mættu ásamt starfsfólki allra svæðisstöðva íþróttahreyfingarinnar og stjórn og starfsfólki UMFÍ. Fundarstjóri var Jón Páll Hreinsson, fyrrverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur.

Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, setti fundinn og lagði áherslu á samstöðu og samvinnu. Hann minnti á að starfið snerist fyrst og fremst um börn og ungmenni og þakkaði sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðrum sem leggja hreyfingunni lið. Fjölmörg mál voru á dagskrá, meðal annars sameiginleg stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ. Um hana voru haldnar tvær vinnustofur sem Skúli Bragi Geirdal, varaformaður UMFÍ, og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, stýrðu.

Í hópi gesta voru Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, sem flutti ávarp. Þar ræddi hann um fjármögnun íþróttahreyfingarinnar og þær áskoranir sem hún stendur frammi fyrir og lagði áherslu á mikilvægi þess að hreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn.

Willum benti á að rannsóknir hafi staðfest forvarnargildi íþrótta. Þá vísaði hann í nýlega skýrslu Golfsambands Íslands, sem metur samfélagslegt virði golfsins á rúma 31 milljarð króna á ári. Sambærileg gögn vanti fyrir íþróttahreyfinguna í heild en séu niðurstöðurnar hafðar til hliðsjónar gæti ávinningurinn numið um 200 milljörðum króna. Á sama tíma hafi framlag ríkisins til íþrótta dregist saman. Sameiginleg stefnumótun nýtist hreyfingunni til að tala einum rómi við stjórnvöld um að líta beri á framlag hins opinbera til íþrótta sem fjárfestingu frekar en útgjöld.

/cdn/media/Frettamyndir/umfi.jpg?v=1791762724
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, Ásgeir Sveinsson, framkvæmdastjóri HHF og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ
/cdn/media/Frettamyndir/Skuli-Bragi.jpg?v=1791795414
Skúli Bragi Geirdal, varaformaður UMFÍ
/cdn/media/Frettamyndir/umfi_baejarstjori.jpg?v=1791762740
Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
/cdn/media/Frettamyndir/jon-umfi.jpg?v=1791795804
Jón Páll Hreinsson, fundarstjóri