Hjólað í vinnuna er lokið í tuttugasta og fjórða sinn í ár og stóð átakið í fyrsta skipti yfir allan maímánuð. Sú breyting mæltist vel fyrir meðal þátttakenda og markaði nýtt skref í þróun verkefnisins. Átakið er fyrir marga vorboðinn ljúfi og tákn um að sumarið sé handan við hornið.
Markmið verkefnisins er að hvetja fólk til að huga að daglegri hreyfingu með því að nýta virkan ferðamáta til og frá vinnu. Slík nálgun er einföld leið til að auka hreyfingu í daglegu lífi, með jákvæðum áhrifum á bæði líkamlega og andlega heilsu. Auk þess er þetta hagkvæmur og umhverfisvænn samgöngumáti. Með átakinu vill ÍSÍ stuðla að aukinni hreyfingu, bættu heilsufari og sjálfbærari samfélagi, svo ekki sé litið til fjárhagslegs ávinnings.
Í ár tóku 3.443 þátttakendur þátt frá 253 vinnustöðum. Alls voru 206 lið skráð í kílómetrakeppni. Þátttakan var þó nokkuð minni en árið 2025 þegar þátttakendur voru um 4.300.
Samtals voru hjólaðir 282.219 kílómetrar sem jafngildir um 210,77 hringjum í kringum landið. Þessi árangur hefur einnig umtalsverð jákvæð áhrif á umhverfið. Miðað við losun hefðbundinna fólksbíla má áætla að sparast hafi um 40–50 tonn af CO₂ með því að velja hjólreiðar.
• 62,7% hjóluðu á hefðbundnu hjóli
• 23,5% notuðu rafmagnshjól (samanborið við um 7% árið 2023)
• 8,7% gengu
• 2,6% nýttu sér blandaðan ferðamáta
Samfélagsmiðlar Hjólað í vinnuna voru lifandi á meðan á átakinu stóð. Einnig voru skemmtilegir leikir í gangi á meðan átakið stóð yfir.
Skráningarleikur:
Dregið var daglega úr skráðum þátttakendum í Morgunverkunum á Rás 2. Aðalvinningurinn, reiðhjól frá Erninum, hlaut Rúnar Ingi Eðvarsson hjá Vínbúðinni (ÁTVR).
Myndaleikur:
Þátttakendur deildu myndum og myndböndum af þátttöku sinni. Sigurður Jónas Eggertsson vann verðlaun fyrir bestu myndina, sem tengdist árvekniátakinu GUL HJÓL.
Liðsstjóraleikur:
Tíu liðsstjórar voru dregnir út og hlutu viðurkenningu fyrir sitt framlag. Liðsstjórar gegna lykilhlutverki í því að hvetja samstarfsfólk og byggja upp liðsheild á vinnustöðum.
Verkefnið hefur í gegnum tíðina haft jákvæð áhrif á starfsanda og samheldni á vinnustöðum og dæmi eru um að þátttakendur hafi fundið hjólaáhugann eftir að hafa tekið þátt í átakinu.
Í ár var sérstakt samstarf við Reiðhjólabændur vegna árvekniátaksins GUL HJÓL, sem miðar að auknu öryggi í umferðinni. Þar voru 25 gul hjól sett upp á stöðum þar sem slys hafa orðið til að vekja athygli á hættum í umhverfinu.
Einnig var samstarf við matarvefinn Gott og einfalt, þar sem þátttakendur gátu nálgast heilsusamlegar og hjartavænar uppskriftir.
ÍSÍ þakkar öllum þátttakendum kærlega fyrir góða þátttöku og hvetur þá til að halda áfram að nýta virkan ferðamáta – bæði heilsunnar vegna og til að vernda umhverfið.
Verðlaunahafar geta vitjað vinninga á skrifstofu ÍSÍ við Engjaveg 6 í Laugardal.
Hér í linkunum að neðan er hægt að skoða eftirfarandi:
Úrslit í keppni um hlutfall daga
Nöfn allra vinningshafa í skráningar-, mynda-, og liðstjóraleiknum











