Fara í efni

Verðlaunaafhending Lífshlaupsins fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 3. mars sl. Þar voru nokkur fyrirtæki, hreystihópar og skólar í efstu þremur sætunum sem áttu ekki heimantengt. Starfsfólk ÍSÍ og svæðisfulltrúar ÍSÍ og UMFÍ afhentu verðlaunaplatta þar sem það var hægt.

Norðurland

Á Norðurlandi afhenti Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, Giljaskóla á Akureyri og Þelamerkurskóla í Hörgársveit verðlaunaplatta þeirra. Nokkrir plattar bíða afhendingar og verður það gert um leið og færi gefst.

Austurland

Á Austurlandi afhenti Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, svæðisfulltrúi, verðlaunaplatta starfsfólki Horn – raf- og vélaverkstæðis á Höfn í Hornafirði. Þá tók framkvæmdastjóri Einherja við platta fyrir Grunnskólann á Vopnafirði á samráðsfundinum Raddir ungs fólks á Egilsstöðum.

Starfsfólk Horns með viðurkenninguna. 

Reykjavík

Nokkur fyrirtæki í Reykjavík voru ekki viðstödd verðlaunaafhendinguna í Laugardal og fengu afhenta verðlaunaplatta frá Lindu Laufdal og Hansínu Þóru Gunnarsdóttur, sérfræðingum á fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ.

Þær afhentu verðlaunaplatta til: Landsbankans, Vínbúðarinnar – ÁTVR, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og  Gló stuðningsfélags.

Úrslit og leikir

Hér má sjá úrslit Lífshlaupsins 2026.

Hér má einnig sjá vinningshafa í skráningar- og myndaleik Lífshlaupsins.

Vinsamlega nálgist vinninga fyrir 1. maí 2026.

Landsmenn hafa tekið Lífshlaupinu fagnandi og verkefnið hefur hvatt þúsundir til aukinnar hreyfingar. Lífshlaupið er eitt áhrifamesta hreyfiverkefni landsins og stuðlar að bættri heilsu um allt land.

ÍSÍ óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn!