Verðlaunaafhending Lífshlaupsins 2026
Í ár var ákveðið að tileinka febrúar Lífshlaupinu og átakið var ræst þann 1. febrúar sl. í nítjánda sinn í höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði.
Þátttakan var mjög góð. Á þessum fjórum vikum var heildarfjöldi virkra þátttakenda var 21.175 sem er um 13,8% aukning frá 2025. Sé horft lengra aftur má sjá að þátttakan hefur aukist um 28,5% frá 2024, sem telst mjög jákvæð þróun og segja má að Lífshlaupið hafi tekist að virkja 5,43% þjóðarinnar til hreyfingar.
Skráð lið voru 1.725 og þátttakendur hreyfðu sig samtals 347.550 daga og 27.954.112 mínútur. Magnaður árangur!
Þetta skiptist svona niður:
GRUNNSKÓLAR:
Í grunnskólakeppninni var keppt í 4 flokkum eftir fjölda nemenda í skólanum og aðeins er keppt um hlutfall daga eða flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda nemenda. Í ár tóku alls 28 grunnskólar þátt sem er einnig bæting síðan síðast þegar 23 grunnskólar tóku þátt.
Í flokknum 1-89 nemendur voru 11 skólar skráðir:
|
Sæti |
Skóli |
Dagar |
|
1. |
Súðavíkurskóli |
13,8 |
|
2. |
Vopnafjarðarskóli |
12,81 |
|
3. |
Þingeyjarskóli |
11,69 |
Í flokknum 90-299 nemendur voru 9 skólar skráðir:
|
Sæti |
Skóli |
Dagar |
|
1. |
Engjaskóli |
12,04 |
|
2. |
Borgaskóli |
11,35 |
|
3. |
Þelamerkurskóli |
10,94 |
Í flokknum 300-499 nemendur voru 5 skólar skráðir:
|
Sæti |
Skóli |
Dagar |
|
1. |
Giljaskóli |
7,98 |
|
2. |
Sandgerðisskóli |
5,44 |
|
3. |
Salaskóli |
0,62 |
Í flokknum 500 og fleiri nemendur voru 3 skólar skráðir:
|
Sæti |
Skóli |
Dagar |
|
1. |
Rimaskóli |
9,13 |
|
2. |
Langholtsskóli |
2,28 |
|
3. |
Hagaskóli |
0,07 |
FRAMHALDSSKÓLAR:
Í framhaldsskólakeppninni eru keppnisflokkarnir þrír eftir fjölda nemenda í skólanum. Keppt er bæði um fjölda daga og fjölda mínútna hlutfallslega miðað við heildarfjölda nemenda í skólanum. Í ár tóku einungis 2 skólar þátt sem er veruleg fækkun frá síðasta ári þegar 8 skólar tóku þátt.
Í flokknum 1-399 nemendur var 1 skóli skráður og fær verðlaun fyrir bæði daga og mínútur:
|
Sæti |
Skóli |
Dagar |
Mínútur |
|
1. |
Framhaldsskólinn á Laugum |
2,45 |
288 |
Í flokknum 400-999 nemendur var 1 skóli og fær verðlaunaplatta fyrir mínútur:
|
Sæti |
Skóli |
Mínútur |
|
1. |
Fjölbrautarskólinn við Ármúla |
0,1 |
HREYSTIHÓPAR 60+:
Þessum flokki var bætt við 2024 og hefur verið virkilega vel tekið. Hreystihóparnir keppa einnig um hlutfall daga og mínútna.
Alls skráðu 44 hreystihópar sig til leiks sem er verulega aukning frá því í fyrra þegar 29 hreystihópar skráðu sig til leiks. Aldri þessa flokks var breytt úr 67+ í 60+ og líklegt er að það hafi haft eitthvað að segja.
Í flokki með 1-9 liðsmenn voru 26 hópar:
Hlutföll daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Dagar |
Hlutfall |
|
1. |
Jón Magg 75 ára |
1 |
28 |
28 |
|
1. |
Hjartað |
1 |
28 |
28 |
|
1. |
Vatnsenda |
1 |
28 |
28 |
|
1. |
Sigrún og Jón |
2 |
56 |
28 |
|
2. |
Algorfa Team |
2 |
52 |
26 |
|
3. |
Janus heilsuefling - Sporthúsið |
2 |
50 |
25 |
Hlutfall mínútna í sama flokki:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Mínútur |
Hlutfall |
|
1. |
Jón Magg 75 ára |
1 |
2288 |
3388 |
|
2. |
Vatnsenda |
1 |
3219 |
3219 |
|
3. |
Sigrún og Jón |
2 |
5390 |
2695 |
Í flokknum 10-29 liðsmenn voru 10 hreystihópar:
Hlutföll daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Dagar |
Hlutfall |
|
1. |
Félag eldri borgara Húsavík – FEGHN - LiðB |
25 |
700 |
28 |
|
2. |
LabbRabb |
12 |
316 |
26,3333 |
|
3. |
Aðalinn |
16 |
387 |
24,1875 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Mínútur |
Hlutfall |
|
1. |
LabbRabb |
12 |
31053 |
2587,75 |
|
2. |
Virk efri ár - Akureyri |
17 |
41120 |
2418,8235 |
|
3. |
Skaftárhreppur 60+ |
10 |
19965 |
1996,5 |
Í flokknum 30-69 liðsmenn voru 4 hreystihópar skráðir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Dagar |
Hlutfall |
|
1. |
Ofurmennin – Janus heilsuefling ( Katla fitness) |
34 |
764 |
22,4706 |
|
2. |
Frísk í Fjölni |
31 |
601 |
19,3871 |
|
3. |
Eldri borgarar Húnaþingi vestra |
37 |
697 |
18,8378 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Mínútur |
Hlutfall |
|
1. |
Ofurmennin – Janus heilsuefling ( Katla fitness) |
34 |
72922 |
2144,7647 |
|
2. |
Eldri borgarar Húnaþingi vestra |
37 |
75892 |
2051,1351 |
|
3. |
Frísk í Fjölni |
31 |
52029 |
1678,3548 |
Í flokknum 70-149 liðsmenn voru 4 hópar skráðir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Dagar |
Hlutfall |
|
1. |
Gleðisprengjur - Mosó |
74 |
1796 |
24,2703 |
|
2. |
Kraftur í KR |
124 |
3033 |
24,4597 |
|
3. |
Heilsa og Hugur – Mosó |
77 |
1683 |
21,8571 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Fjöldi í liði |
Mínútur |
Hlutfall |
|
1. |
Gleðisprengjur - Mosó |
74 |
205458 |
2776,4595 |
|
2. |
Kraftur í KR |
124 |
325100 |
2621,7742 |
|
3. |
Heilsa og Hugur – Mosó |
77 |
154781 |
2010,1429 |
Takk Hreystihópar 60+ út um allt land. Þið eigið sannarlega skilið klapp.
VINNUSTAÐAKEPPNI LÍFSHLAUPSINS
Virkir vinnustaðir í ár voru 543 en voru 492 í fyrra. Margir vinnustaðir hafa alltaf tekið þátt öll árin sem Lífshlaupið hefur farið fram og fjölmargir náð að stíga á verðlaunapall oftar en einu sinni. Í þessari keppni er keppt í hlutfalli daga og mínútna og verðlaunað er fyrir fyrstu 3 sætin í hvorum flokki.
Keppnisflokkar í vinnustaðakeppninni eru 7 og skiptast svona niður:
Í flokknum 1-9 starfsmenn voru 86 vinnustaðir virkir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Dagar |
|
1. |
EMDR stofan Reykjanesbæ |
28 |
|
2. |
Leikskólinn Barnaból Þórshöfn |
27,88 |
|
3. |
lsit |
27,33 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Mínútur |
|
1. |
Súðavíkurskóli |
4084 |
|
2. |
Leikskólinn Barnaból Þórshöfn |
3700 |
|
3. |
lsit |
3645,33 |
Í flokknum 10-29 starfsmenn voru 141 vinnustaðir virkir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Dagar |
|
1. |
Endurhæfing - þekkingarsetur |
28 |
|
2. |
Horn rafmagns- og vélaverkstæði ehf. |
28 |
|
3. |
Barmahlíð |
27,5 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Mínútur |
|
1. |
Horn rafmagns- og vélaverkstæði ehf. |
3824,29 |
|
2. |
Barmahlíð |
3729,14 |
|
3. |
Félagsleg Stuðningsþjónusta Árborg |
2761,42 |
Í flokknum 30-69 starfsmenn voru 122 virkir vinnustaðir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Dagar |
|
1. |
Engjaskóli |
25,27 |
|
2. |
Víkurskóli, Reykjavík |
25,09 |
|
3. |
Gló |
21,94 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Mínútur |
|
1. |
Grunn- og Tónlistarskóli Húnaþings vestra |
2262,56 |
|
2. |
Engjaskóli |
2236,71 |
|
3. |
Víkurskóli, Reykjavík |
2045,71 |
Í flokknum 70 – 149 starfsmenn voru 92 virkir vinnustaðir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Dagar |
|
1. |
Myllubakkaskóli |
23,21 |
|
2. |
Akurskóli |
22,14 |
|
3. |
VIRK starfsendurhæfingarsjóður |
20,36 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Mínútur |
|
1. |
Myllubakkaskóli |
2194,25 |
|
2. |
Akurskóli |
1622,49 |
|
3. |
VIRK starfsendurhæfingarsjóður |
1527,14 |
Í flokknum 150-399 starfsmenn voru 62 virkir vinnustaðir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Dagar |
|
1. |
NOVA |
16,16 |
|
2. |
HMS – Húsnæðis og mannvirkjastofnun |
16,01 |
|
3. |
Seðlabanki Íslands |
14,45 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Mínútur |
|
1. |
NOVA |
1258,24 |
|
2. |
Seðlabanki Íslands |
12,57,27 |
|
3. |
HMS – Húsnæðis og mannvirkjastofnun |
1110,89 |
Í flokknum 400-799 starfsmenn voru 24 virkir vinnustaðir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Dagar |
|
1. |
EFLA |
9,87 |
|
2. |
Vínbúðin - ÁTVR |
8,78 |
|
3. |
Sýn hf. |
7,43 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Mínútur |
|
1. |
EFLA |
951,82 |
|
2. |
Sýn hf. |
622,69 |
|
3. |
Vínbúðin - ÁTVR |
586,31 |
Að lokum þá voru í flokknum með 800+ starfsmenn 16 vinnustaðir virkir:
Hlutfall daga:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Dagar |
|
1. |
Landsbankinn hf |
9,95 |
|
2. |
Arionbanki / Vörður |
8,13 |
|
3. |
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins |
4,57 |
Hlutfall mínútna:
|
Sæti |
Nafn liðs |
Mínútur |
|
1. |
Arionbanki / Vörður |
1083,11 |
|
2. |
Landsbankinn hf |
808,13 |
|
3. |
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins |
357,56 |
ÍSÍ vill þakka öllum fyrir þátttökuna og sérstaklega öllum liðsstjórum fyrir samvinnuna og þeirra framlag við að hvetja samstarfsmenn sína til dáða. Þetta var árangursríkt Lífshlaup og við hlökkum til að sjá enn meiri aukningu á næsta ári.
ÍSÍ þakkar einnig styrktaraðilum kærlega fyrir einstaklega gott og skemmtilegt samstarf í skráningar og myndarleik. Styrktaraðilar í ár voru Mjólkursamsalan, Heilsa.is, Lemon, Primal Iceland, Skautahöllin í Laugardal, Skautahöllin á Akureyri, Klifurhúsið, World Class, Saunagus Reykjanes og Unbroken.
Sérstakar þakkir fær síðan Andri Freyr, þáttarstjórnanda á Rás 2 fyrir sérlega gott samstarf í að koma upplýsingum um skráningar og myndarleik til þátttakenda alla virka daga á meðan átakið stóð yfir.
Á næsta ári munum við vonandi kynna fyrir ykkur uppfært og betra skráningarkerfi fyrir Lífshlaupið en fram að því er um að gera að nota núverandi Lífshlaupskerfi til að halda utan um hreyfinguna sína allt árið. Þannig er hægt að fylgjast með tölfræðinni inni í kerfinu sem getur virkað sem hvatning fyrir marga.
Höldum áfram að hreyfa okkur fyrir lífið!