Fara í efni

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og mennta- og barnamálaráðuneytið stóðu fyrir málþinginu Virk alla ævi – þátttaka kvenna í íþróttum miðvikudaginn 30. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið var haldið í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (#BeActive). Þar var fjallað um stöðu og þátttöku kvenna í íþróttum á ólíkum æviskeiðum, allt frá unglingsárum til efri ára.

/cdn/media/Frettamyndir/13855160-6065-4e15-9e85-ec23600ad8a1.jpg?v=1792495268

Stóra áskorunin kemur á unglingsárum

Iðkunum barna og unglinga hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Brottfallið er samt enn mikið og stærsta áskorunin kemur eftir 15 ára aldur. Þetta kom fram í erindi Ragnhildar Skúladóttur, sviðsstjóra fræðslu og almenningsíþrótta hjá ÍSÍ. Munurinn á kynjunum myndast fyrr, því stúlkur hætta frekar en drengir strax á fyrstu unglingsárunum. Ragnhildur fór einnig yfir kynjahlutföll í stjórnum. Karlar eru þar enn í meirihluta, einkum í formannssætum, en íþróttahéruðin skera sig úr með jöfn hlutföll.

Unga fólkið hefur sjálft skoðanir á því hvað þurfi að breytast. Hansína Þóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá ÍSÍ, kynnti verkefnið Raddir ungs fólks. Þar ræddi ungt fólk á aldrinum 15–25 ára við ráðamenn á átta fundum um allt land. Rætt var um hvernig halda megi fleirum lengur í starfinu, hvernig ná megi betur til barna sem síður taka þátt og hvernig íþróttahreyfingin liti út ef hún yrði byggð upp frá grunni í dag.

Jafnrétti á blaði en færri aðgerðir

Staða Íslands er heilt yfir nokkuð góð í alþjóðlegum samanburði, að sögn Örvars Ólafssonar, sérfræðings í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Lítið er þó um markvissar aðgerðir. Mun fleiri segjast stefna að jafnrétti kynjanna en hafa áætlun til að vinna eftir, og konur eru enn í miklum minnihluta þjálfara á efsta getustigi.

Stuðningur á öllum æviskeiðum

Lára Hafliðadóttir, hjá vísindasviði KSÍ, kynnti Evrópuverkefnið Active and Equal. Ísland er eitt sex landa sem taka þátt í því. Lára fjallaði um stuðning við íþróttakonur á fjórum æviskeiðum: kynþroskaskeiði, meðgöngu, breytingarskeiði og efri árum. Hún benti á að tíðahringurinn sé ein ástæða brottfalls úr íþróttum og að fræðsla og opnari umræða geti dregið úr því. Þjálfarar telja sig auk þess oft skorta þekkingu til að styðja konur á meðgöngu og við endurkomu eftir fæðingu. Niðurstaða Láru var að ekki þurfi sérstakar áætlanir fyrir konur, heldur þurfi að taka meira tillit til sérkenna þeirra.

Þátttaka kvenna í íþróttastarfi var einnig rædd í tveimur pallborðum. Þar sátu Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Sigrún Agatha Árnadóttir, Þorey Edda Elísdóttir, Lára Hafliðadóttir, Daði Rafnsson og Eva Katrín Friðgeirsdóttir.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ávarpaði einnig málþingið og lagði áherslu á mikilvægi íþrótta fyrir lýðheilsu. Hann sagði íþróttir eitt öflugasta lýðheilsutæki sem samfélagið á, og að íþróttahreyfingin geti lagt sitt af mörkum svo konur finni sér stað í íþróttastarfi á öllum æviskeiðum.

Linda Heiðarsdóttir, skrifstofustjóri skóla- og íþróttamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu, setti málþingið og Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, stýrði fundinum.

ÍSÍ þakkar fyrirlesurum, þátttakendum í pallborði og öllum sem mættu fyrir gott og fræðandi málþing.

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3726.png?v=1792495990

 

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3678.png?v=1792494819

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3750.png?v=1792495632

/cdn/media/Frettamyndir/Orvar.jpg?v=1792495745

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3643.png?v=1792495135