Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar hefur lokið úthlutun styrkja á sínu fyrsta starfsári. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilinum og með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Þann 5. desember á alþjóðadegi sjálfboðaliðans var lokað fyrir tilnefningar til Íþróttaeldhugans 2025. Alls bárust 208 tilnefningar um 116 einstaklinga úr 25 íþróttagreinum.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vekur athygli á einstöku tækifæri fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök innan íþróttahreyfingarinnar til að taka þátt í World Company Sport Games 2026, sem fram fara í Frederikshavn í Danmörku dagana 10.–14. júní 2026.
Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrk vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2025.
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 12. janúar 2026.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur unnið úttekt á Ferðasjóði íþróttafélaga. Úttektin var unnin út frá gögnum úr umsóknarkerfi sjóðsins, og byggir á gögnum áranna 2018 - 2024. Á því tímabili voru 16.125 umsóknir sem uppfylltu úthlutunarreglur sjóðsins og úttektin byggir á.