Fara í efni

Almennar fréttir

15. okt. 2025

„Tryggir skýr gæðaviðmið félagsins“

Sundfélagið Óðinn er Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Almennar fréttir
15. okt. 2025

Ný heimasíða svæðisstöðva íþróttahéraðanna

Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna, sem eru samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ, eru nú komnar með heimasíðu þar sem finna má hinar ýmsu upplýsingar og verkfærakistu fyrir íþróttahreyfinguna.
Almennar fréttir
15. okt. 2025

Þrír skólar dregnir út í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

Þrír skólar voru dregnir út sem lokið hafa hlaupinu og skilað inn upplýsingum til ÍSÍ fyrir 10. október. Hver þeirra hlýtur 150.000 kr. Inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.
Almennar fréttir
10. okt. 2025

Sigur fyrir sjálfsmyndina

Íþrótta- og kvikmyndagerðarmaðurinn Magnús Orri Arnarson frumsýndi nýverið heimildarmynd sína, Sigur fyrir sjálfsmyndina, í Bíó Paradís. Í myndinni fylgir Magnús Orri fimm íslenskum keppendum í undirbúningi og þátttöku á vetrarleikum Special Olympics sem fram fóru á Ítalíu í mars á þessu ári.
Almennar fréttir
8. okt. 2025

Málþing um íþróttir og andlega heilsu

Í tilefni alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins 10. október, standa Úkraínska Knattspyrnusambandið og Knattspyrnusamband Íslands, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, fyrir sameiginlegum viðburði um íþróttir og andlega heilsu fimmtudaginn 9. október frá kl. 12:30 - 15:00, í fundarsölum ÍSÍ á 3. hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Viðburðurinn fer fram á ensku og er öllum opinn.
Almennar fréttir
8. okt. 2025

Þátttökuverðlaun Göngum í skólann 2025

Þrír skólar voru dregnir út eftir að verkefninu lauk og hlaut hver þeirra 150.000 kr. gjafabréf frá Altis. skóalóð. Skólarnir sem voru dregnir út í ár eru Akurskóli, Flúðaskóli og Grunnskóli Grundarfjarðar
Almennar fréttir
2. okt. 2025

Um 500 viðburðir fóru fram í Íþróttaviku Evrópu um allt land

Íþróttavika Evrópu #beactive, fór fram dagana 23. til 30. september og var að þessu sinni sérstaklega hátíðleg. Um var að ræða 10 ára afmæli þessa verkefnis sem miðar að því að hvetja fólk á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og virkni í daglegu lífi.
Almennar fréttir
2. okt. 2025

Alþjóðlegur dagur göngunnar 5. október

Alþjóðlegur dagur göngunnar, World Walking Day, er þann 5. október og er markmið dagsins að hvetja fólk um heim allan til aukinnar hreyfingar.
Almennar fréttir
30. sep. 2025

Forvarnardagurinn settur í 20. sinn á morgun

Miðvikudaginn 1. október verður Forvarnardagurinn 2025 settur í 20. sinn með málþingi í Vogaskóla. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er þá sjónum beint sérstaklega að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Skólar skrá sig til þátttöku og vinna verkefni Forvarnardagsins á tímabilinu 1.-24. október
Almennar fréttir